Skrautlegar persónur í Reykjavík nútímans Ásdís Sigmundsdóttir skrifar 27. janúar 2015 14:00
Bækur Rogastanz Ingibjörg Reynisdóttir 2014, Sögur útgáfa Ein mikilvægasta ákvörðun sem höfundur tekur þegar hann skrifar skáldsögu er að velja frásagnarháttinn. Hinir ýmsu möguleikar hafa mismunandi áhrif og henta söguefni misvel. Sú aðferð að segja sögu í þriðju persónu nútíð er ekki algeng í íslenskum bókmenntum og hefur helst tíðkast í þýðingum á erlendum barnabókum sem unnar eru upp úr sjónvarpsþáttum eða kvikmyndum. Þessi háttur er líka algengur í handritaskrifum sem skýrir kannski af hverju upplifun mín á að lesa skáldsögu Ingibjargar Reynisdóttur, Rogastanz, var sú að ég væri að lesa lýsingu á sjónvarpsþætti eða kvikmynd. Þessi frásagnarháttur getur aukið dramatíska spennu vegna þess að hann krefst þess að lesendur gangist inn á það að sagan sé að gerast, á þessum stað og stund, en ef höfundur er ekki þeim mun færari þá er hætta á að lesendur kaupi það ekki. Það verður þá erfiðara fyrir lesendur að gangast inn á forsendur sögunnar og við það skapast fjarlægð gagnvart efninu. Myndræn útfærsla handrita yfirvinnur þetta vandamál en það gerist ekki jafn auðveldlega þegar texti er lesinn, sérstaklega vegna þess að ekki er mikil hefð fyrir þessari aðferð í íslenskum bókmenntum. Til að nota þennan frásagnarhátt þarf sagan því að vera mjög svo trúverðug og það er því miður ekki raunin hér. Ingibjörg lýsir skrautlegum persónum í Reykjavík nútímans sem erfitt er að tengja við. Aðalpersónan, Sara, sem er rúmlega fertugur blaðamaður, er skilgetið afkvæmi hinnar dæmigerðu söguhetju skvísubókmenntanna, hálf vandræðaleg einstæð kona sem er í leit að ást, en vandamálið er það að sú týpa er yfirleitt á þrítugsaldri og það er bara sorglegt að sjá manneskju sem ekki hefur þroskast neitt á tveimur áratugum. Helstu aukapersónur eru flestar einhliða, annaðhvort nánast fullkomnar (lesbísku vinkonurnar) eða afskræmdar skrípamyndir (serbnesku hjónin). Persónusköpunin felst gjarnan í því að lesendum er sagt að persónurnar séu svona eða hinsegin frekar en að sagan leiði það í ljós. Auk þessa er sjónarhornið sem Ingibjörg velur afskaplega flöktandi og óljóst. Farið er úr lýsingum á því sem gerist, forsögu persónanna og hugsunum þeirra auk túlkana sögumanns á þessu öllu án fyrirvara og án þess að stíll textans fylgi því eftir. Alvitur sögumaður er auðvitað viðurkennt frásagnarform en þá skiptir öllu máli að frásögnin sé þannig að hvert atriði taki við af öðru á eðlilegan hátt og sviptingar sem þessar séu undirbyggðar eða að minnsta kosti hafi tilgang í heildarbyggingu sögunnar. Í þessari bók er forsögu persónanna skeytt inn í söguna án þess að það sé í eðlilegu samhengi frásagnarinnar, samtöl sem hafa engan sérstakan tilgang eru allt of algeng og atriðum sem eiga að vera skondin er lýst þannig að það er erfitt fyrir lesanda að sjá þau fyrir sér vegna fyrrnefndrar fjarlægðar. Við það fellur grínið oftast um sjálft sig og þá stendur ekki mikið eftir.Niðurstaða: Frásagnarhátturinn og vandamál í framsetningu sögunnar gera það að verkum að efnið nær engu flugi.
Gagnrýni Menning Mest lesið Hulunni svipt af Taskmaster Bíó og sjónvarp „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Lífið Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? Lífið Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson Lífið Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Menning Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Gagnrýni Hvernig fer Óskarinn? Bíó og sjónvarp Höfundur Fíusólar svarar reiðum mæðrum eftir ákall um bókabrennu Lífið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Lífið samstarf Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Lífið Fleiri fréttir Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Hvað eiga frægasti djasstónlistarmaður heims og íslensk kráka í Feneyjum sameiginlegt? Öskrað á of litlu sviði Lengsti klukkutími ævinnar Reimleikar í húsinu eða röskun í heilanum? Hlægileg sjálfsfróun og hryðjuverk á Wuthering Heights Óperan lifir á íslensku Dillandi danskur Bond til bjargar blokkinni Krakkaskaup fyrir fullorðna Fegurðardýrkun í Oz-landi Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Sjá meira