Á vissum tímapunkti frussurigndi hundaslefi Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 13. júní 2015 08:00 Líkt og sjá má á þessari mynd var talsvert þröngt í blæjubílnum, en fullvaxta karlkyns sankti bernharðshundur er 77-100 kíló að þyngd. Mynd/KjartanHreinsson
Þrír stæðilegir sankti bernharðshundar vöktu athygli í nýju myndbandi við Brennum allt með hljómsveitinni Úlfur Úlfur en lagið má finna á nýútkominni breiðskífu hennar, Tveimur plánetum. Hundarnir, sem heita Igor, JR og Gucci, sjást í myndbandinu þeytast um í blæjubíl og í göngutúr með rapparanum Kött Grá Pje en lagið er unnið í samstarfi við hann. Hann ber hundunum vel söguna og segir þá prýðis samstarfsmenn þrátt fyrir talsverða munnvatnsframleiðslu. „Fyrir mig var það ósköp átakalaust og að flestu leyti indælt,“ segir hann léttur um samstarfið. „Hins vegar slefuðu þeir mikið í hárið á mér. Á vissum tímapunktum svona frussurigndi yfir mig,“ segir hann glaður í bragði og auðheyrt er að það hefur ekki farið mikið fyrir brjóstið á honum. „Það eina var að þeir komust eiginlega ekki fyrir í bílnum, það var mjög tæpt. En þeir voru mjög elskulegir og góðir. Felldu sig ágætlega við mig sem angaði allur af kattalykt,“ segir hann hress. „Mér fannst erfiðara að keyra þennan ægilega trukk heldur en að vera með hundunum.“ Upptökurnar stóðu yfir í nokkra tíma og var Guðný Vala Tryggvadóttir, eigandi hundanna og hundaræktunarinnar Sankti-Ice, á staðnum við upptökurnar ásamt aðstoðarkonu. „Hún Guðný og konan sem var með henni eru rétt fyrir utan mynd allan tímann að gilligilla blessaða hundana til þess að halda þeim góðum,“ segir hann en auk þess að fara á rúnt í blæjubíl tóku hundarnir ríflegan göngutúr ásamt rapparanum og fengu því vafalítið talsverða hreyfingu út úr deginum.Hér má sjá Guðnýju, Kött Grá Pje, hundana og leikstjórann Magnús Leifsson við upptökur.Mynd/KjartanHreinssonKött Grá Pje útlokar ekki að hann muni einhvern tíma fá sér sankti bernharðshund þótt það verði ekki í nánustu framtíð. „Ég held að kisan mín yrði frekar óánægð með það. Ég á litla kisu sem er frek á mig. En ég gæti vel hugsað mér það einhvern tíma seinna þegar hún er orðin gömul og skeytingarlaus um mig því þeir voru algjört æði.“ Guðný Vala eignaðist sinn fyrsta sankti bernharðshund árið 1997, þá sautján ára gömul, og segir áhugann meðfæddan. Myndbandið, sem leikstýrt er af Magnúsi Leifssyni, er frumraun þeirra Igors, JR og Gucci fyrir framan tökuvélarnar. „Þetta var þeirra fyrsta tónlistarmyndband og vonandi ekki það síðasta,“ segir hún glöð í bragði. Hún hælir sömuleiðis Kött Grá Pje og tekur undir að hann hafi þruft að þola talsvert slef við upptökurnar. „Það var svolítið heitt þarna og undir lokin voru þeir nú farnir að vera svolítið blautir eins og maður segir,“ segir hún hlæjandi og bætir við: „Hann var engin pempía, við getum alveg sagt það.“
Tónlist Tengdar fréttir Myndir: Úlfur Úlfur fögnuðu nýrri plötu og myndbandi Eftn var til frumsýningar- og útgáfuteitis á Lofti hosteli á miðvikudaginn í tilefni af útgáfu plötunnar Tvær plánetur og frumsýningar myndbands við lagið Brennum allt. 12. júní 2015 10:30 Sumarlífið: Úlfur Úlfur með svakalegt útgáfupartý Davíð Arnar Oddgeirsson og Ósk Gunnarsdóttir voru mætt með Sumarlífið í útgáfupartý á Loft Hostel. Úlfur Úlfur gaf út plötuna Tvær Plánetur í gær og einnig var myndband við lagið Brennum allt frumsýnt. 11. júní 2015 17:00 Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Lífið Laufey fær eigin God of War leik Leikjavísir Fleiri fréttir Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Ástarsorgin átakanleg en gjöful Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upphitun fyrir Yasiin Bey Kynþokkafullir með fortíðarþrá Stuðpinnar skáluðu í innsetningunni Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Sjá meira
Myndir: Úlfur Úlfur fögnuðu nýrri plötu og myndbandi Eftn var til frumsýningar- og útgáfuteitis á Lofti hosteli á miðvikudaginn í tilefni af útgáfu plötunnar Tvær plánetur og frumsýningar myndbands við lagið Brennum allt. 12. júní 2015 10:30
Sumarlífið: Úlfur Úlfur með svakalegt útgáfupartý Davíð Arnar Oddgeirsson og Ósk Gunnarsdóttir voru mætt með Sumarlífið í útgáfupartý á Loft Hostel. Úlfur Úlfur gaf út plötuna Tvær Plánetur í gær og einnig var myndband við lagið Brennum allt frumsýnt. 11. júní 2015 17:00