Tónlist

Lögin á plötunni samin fyrir fimm tríó

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Ásgeir Ásgeirsson hefur verið einn mest áberandi gítarleikari þjóðarinnar um árabil.
Ásgeir Ásgeirsson hefur verið einn mest áberandi gítarleikari þjóðarinnar um árabil. Mynd/Bent Marinós
Gítarleikarinn Ásgeir Ásgeirsson sendir frá sér sína aðra sólóplötu og nefnist hún einfaldlega Ásgeir Ásgeirsson tríó. Á plötunni leikur hann sér með þemað tríó, en hann hefur samið tíu lög fyrir fimm tríó sem öll eru starfandi um þessar mundir. „Þetta gefur plötunni öðruvísi blæ því að tríóin eru með mismunandi stíl,“ segir Ásgeir um plötuna.

Annað þema sem er á plötunni er að lögin eru öll samin með röddinni einni saman. Hann semur laglínurnar fyrst og gítar og píanó eru víðs fjarri við lagasmíðarnar. „Þetta er svolítið eins og popptónlist þegar laglínan verður til á undan. Laglínurnar verða oft einfaldari og meira grípandi þegar þær eru samdar á undan,“ bætir Ásgeir við.

Hann hóf upptökur á plötunni í desember og tók vinnan nánast allan síðasta vetur. „Hugmyndin um þessa plötu og þetta þema er samt örugglega þriggja ára.“

Með Ásgeiri á plötunni leika þau Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir á fiðlu, Haukur Gröndal á saxófón, Snorri Sigurðarson á flugelhorn, Gunnar Gunnarsson á píanó, Karl Olgeirsson á Hammondorgel, Ólafur Hólm á trommur, Stefanía Svavarsdóttir og Kristbjörn Helgason sjá um söng og um bassaleik sjá þeir Þórður Högnason, Richard Anderson, Gunnar Hrafnsson og Þorgrímur Jónsson.

Ásgeir Ásgeirsson hefur verið einn mest áberandi gítarleikari þjóðarinnar um árabil. Verið margoft tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna í poppi og djassi og flokknum önnur tónlist. Ásgeir kemur reglulega fram með Páli Óskari, Ragnheiði Gröndal og Guðrúnu Gunnars sem og með alþjóðlegu balkansveitinni sinni Skuggamyndum frá Býsans.

Ásgeir ætlar að fagna útgáfunni með tónleikum í Silfurbergi í Hörpu þann 13. ágúst næstkomandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.