Fallist á breytingar á uppbyggingarkröfum tíðniheimildar 365 miðla sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 8. janúar 2016 17:15 Ríkisstjórnin hyggst verja 500 milljónum í ljósnetsvæðingu. vísir/pjetur
Póst- og fjarskiptastofnun hefur tekið ákvörðun um að draga úr útbreiðslu- og uppbyggingarkröfum til 365 miðla um 4G þjónustu, eftir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um ljósleiðaravæðingu á landsbyggðinni. Samkvæmt kröfunum er félaginu gert að bjóða 99,5 prósent lögheimila og vinnustaða á öllum landssvæðum háhraða farnetsþjónustu fyrir árslok 2016. Ákvörðunin felur í sér að félagið skuldbindi sig nú til að bjóða farnetsþjónustu sem nær til 97 prósent heimila fyrir árslok 2016 og til 99,5 prósent heimila fyrir árslok 2026. Stofnuninni barst erindi frá 365 miðlum í apríl síðastliðnum þar sem óskað var eftir tilslökun á þessum kröfum, það er að boðið verði upp á 10 Mb/s gagnamagnshraða fyrir árslok 2016 og 30 Mb/s gagnamagnshraða fyrir árslok 2020. Félagið taldi að heimilað samstarf Fjarskipta hf (Vodafone) og Nova ehf til uppbyggingar á sameiginlegu dreifikerfi félaganna annars vegar og skýrsla starfshóps innanríkisráðherra um ljósleiðaravæðingu fæli í sér forsendubrest sem félagið tók á sig í uppboði stofnunarinnar.Forsendur breyttust eftir ákvörðun ríkisstjórnarinnar Stofnunin féllst ekki á að samstarf Fjarskipta og Nova hefði haft áhrif á forsendur uppbyggingarkrafna tíðniheimildarinnar. Aftur á móti taldi hún að fjárlög fyrir árið 2016, þar sem yfir 500 miljónum er varið til fjarskiptasjóðs til uppbyggingar á ljósleiðaraneti á landsbyggðinni, feli í sér breytingar á forsendum sem lágu að baki þeim kröfum sem gerðar voru í uppboði stofnunarinnar. Þá komst stofnunin einnig að því að það falli að lögbundnum verkefnum hennar, um örvun samkeppni og skilvirkni í uppbyggingu fjarskiptainnviða, neytendum til hagsbóta, að fallast á að ákveðnar tilslakanir verði gerðar á kröfum tíðniheimildarinnar. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365 miðla, segir þessar breytingar afar þýðingarmiklar fyrir fyrirtækið. „Þetta hefur þá þýðingu að í stað þess að við séum að fara í uppbyggingu á farsímakerfi sem á að ná til dreifðustu byggða landsins, sem myndi kosta nokkra milljarða, þá getum við nýtt ljósleiðarauppbyggingu ríkisstjórnarinnar til þess að tryggja að bændur og ferðamenn í landinu fái aðgang að farsímakerfi sem er byggt upp fyrir brot af því sem það hefði annars kostað. Þetta gerum við með því að nýta okkur það að það verði búið að tengja ljósleiðara inn að dreifbýlinu og setjum upp smásellur, litla farsímasenda, sem nýta sér rafmagnið sem er til staðar á bóndabæjunum og ljósleiðaratenginguna á hverjum stað og náum þannig þannig að vera með mun hagstæðari uppbyggingu á farsímaþjónustu en áður hefur þekkst,“ segir hann og bætir við að þessi ákvörðun komi til með spara fyrirtækinu töluvert í uppbyggingu. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir að með þessu geti 365 miðlar eflt uppbygginguna sem ríkisvaldið muni fjármagna og byggja upp hagkvæmara net. „Fyrir hinn almenna borgara þýðir þetta það að ef 365 byggir upp þetta kerfi er hægt að gera það á hagkvæmara verði. Þetta eru býsna miklar kröfur, að það eigi að ná til 99 prósent landsmanna; 95 prósent í þéttbýli og 5 prósent utan þess. Þetta eru allt nema innan við þúsund heimili á landinu sem er gríðarlega mikið,“ segir hann.
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Sjá meira