Vettvangur fyrir hugmyndir Viktoría Hermannsdóttir skrifar 12. janúar 2016 11:00 Edda segir mikilvægt að fólk sé óhrætt við að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og um það verður meðal annars rætt á fundinum. Fréttablaðið/Anton Brink „
Við viljum skapa umræðu og veita fólki innblástur til þess að þora að hrinda hugmyndunum sínum í framkvæmd,“ segir Edda Konráðsdóttir, verkefnastjóri hjá Icelandic Startups. Í hádeginu í dag verður haldið svokallað nýsköpunarhádegi í Bíói Paradís. Icelandic Startups sem hefur umsjón með Gullegginu stendur fyrir viðburðinum í samstarfi við Nýherja og Stjórnvísi. Hugmyndin að fundinum kviknaði út frá tölfræðiniðurstöðum fyrir keppnina sem sýna ójafnt kynjahlutfall keppenda í Gullegginu en þar hallar verulega á konur. „Við viljum skoða af hverju færri konur taka þátt en við erum ekki endilega að einblína á það á fundinum. Við viljum vera hvetjandi fyrir fólk af báðum kynjum. Við erum að velta því upp hvað það er sem stoppar fólk í því að hrinda góðum hugmyndum í framkvæmd.“ Markmið fundarins er að veita fólki innblástur og sýna fram á að það eru engar hindranir ef fólk veit hvað það vill og hvert það stefnir. Elínrós Líndal stýrir fundinum og í panel sitja þau Ragnheiður H. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Hugsmiðjunni, Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Betri svefni, Sigurður Arnljótsson hjá SA Framtaki og Bergur Finnbogason, Creative Producer hjá CCP, auk þess sem Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, verður með hvatningarorð í upphafi fundar. Þetta er í níunda sinn sem Gulleggið er haldið en hægt er að skila inn umsóknum í keppnina til og með 20. janúar. „Markmiðið með keppninni er að skapa vettvang þar sem ungt fólk getur mótað nýjar viðskiptahugmyndir. Þetta er tækifæri fyrir frumkvöðla til að koma hugmyndunum áfram og gera eitthvað,“ segir Edda. Áhorfendur í sal geta tekið þátt í fundinum með því að setja inn spurningar undir myllumerkinu #EngarHindranir á Twitter. Fundurinn hefst klukkan 12 og aðgangur er ókeypis. Viðburðurinn verður einnig í beinni útsendingu og tenglinum á streymið verður deilt á viðburðinn á Facebook.
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Sjá meira