Eistlendingur með íslenska tengingu í Mosfellsbæinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. janúar 2016 12:30 Mikk Pinnonen í leik með Árósum. vísir/getty
Afturelding gengur frá samningi við nýjan leikmann í dag en Eistlendingurinn Mikk Pinnonen er búinn að samþykkja samning við Olís-deildarliðið. „Það er allt klárt. Hann á bara eftir að skrifa undir í dag. Ég er einmitt að ná í hann núna út á flugvöll,“ sagði Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, við Vísi í hádeginu. Pinnonen er lágvaxinn leikstjórnandi, 180 cm á hæð, en sterkur maður á mann, að sögn Einars. Hann var síðast á mála hjá Dormagen í Þýskalandi en spilaði þar áður í Rúmeníu og Svíþjóð. „Hann var barnastjarna í eistneskum handbolta svona eins langt og það nær. Hann var svo í yngri flokkunum hjá Aarhus og spilaði þar með meistaraflokknum,“ sagði Einar Andri. „Hann er líka með íslenska tengingu. Hann átti íslenska kærustu og var með nokkrum strákum úr Aftureldingu í námi í Árósum þannig hann þekkir ágætlega til.“ Einar Andri sá Pinnonen fyrst þegar hann var að þjálfa '90-landsliðið fyrir fimm árum síðan en það mætti Eistum með Pinnonen í fararbroddi. „Hann var alveg hrikalega öflugur þannig við reyndum að fá hann í FH. Svo losnaði hann bara hjá Dormagen í vetur og þannig kom þetta upp hjá okkur. Hann á að vera góður en við verðum bara að sjá hvernig hann aðlagast,“ sagði Einar Andri. Afturelding, sem komst í úrslitarimmuna á Íslandsmótinu í fyrra, er í fjórða sæti Olís-deildarinnar þegar 18 umferðum er lokið. Einar segir þessi kaup skilaboð um að Mosfellingar ætli sér alla leið í vor. „Það er klárt mál. Menn eru búnir að finna lyktina af þessu í Mosfellsbænum og ætla sér meira í vetur og á næstu árum. Þetta er viðleitni í að nálgast þrjú efstu liðin. Okkur langar svo sannarlega að vera með,“ sagði Einar Andri Einarsson.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira