Halldór Bjarkar hættir hjá Arion Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. janúar 2016 09:39 Halldór Bjarkar Lúðvígsson lætur af störfum hjá Arion.
Halldór Bjarkar Lúðvígsson, framkvæmdastjóri fjárfestingabankasviðs Arion, mun láta af störfum hjá bankanum á næstu dögum. Þetta staðfestir Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion, í samtali við Vísi. Ákvörðunin var tilkynnt í morgun. Halldór Bjarkar tók við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs Arion banka í september 2011. Á árunum 2010 til 2011 var hann framkvæmdastjóri fyrirtækjaþjónustu Arion banka. Hann vann fyrir skilanefnd Kaupþings um skeið og á árunum 2005 til 2008 starfaði Halldór á útlánasviði Kaupþings banka. Halldór Bjarkar var lykilvitni í þeim málum sem sérstakur saksóknari hefur rekið gegn stjórnendum Kaupþings. Í niðurstöðu Héraðsdóms í svokölluðu Chesterfield-máli, sem kveðinn var upp fyrr í vikunni, kemur fram að Halldór Bjarkar hafi verið óstöðugur í skýrslum sem hann gaf í málinu, annars vegar undir rannsókn málsins og hins vegar fyrir dómi. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, hefur sakað Halldór Bjarkar um innherjasvik þegar hann seldi bréf í Kaupþingi fáeinum dögum áður en bankinn féll. Þeim ásökunum hefur Halldór Bjarkar hafnað með yfirlýsingu.
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Sjá meira