Valur batt enda á sigurgöngu Stjörnunnar | ÍBV aftur á toppinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. janúar 2016 15:47 Kristín Guðmundsdóttir rauf 100 marka múrinn í Olís-deild kvenna í dag. vísir/stefán
Valur vann mikilvægan sigur á Stjörnunni í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Lokatölur 19-18, Val í vil. Valur er enn í 3. sæti deildarinnar, nú með 26 stig eftir 16 leiki. Stjarnan er hins vegar í 6. sæti en liðið var búið að vinna sjö leiki í röð áður en að leik dagsins kom. Íris Ásta Pétursdóttir var markahæst í liði Vals með fimm mörk en Kristín Guðmundsdóttir, Morgan Marie Þorkelsdóttir og Sigurlaug Rúnarsdóttir komu næstar með fjögur mörk hver. Hanna G. Stefánsdóttir var í sérflokki í liði Stjörnunnar og skoraði níu af 18 mörkum liðsins.Mörk Vals: Íris Ásta Pétursdóttir 5, Kristín Guðmundsdóttir 4, Morgan Marie Þorkelsdóttir 4, Sigurlaug Rúnarsdóttir 4, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 2.Mörk Stjörnunnar: Hanna G. Stefánsdóttir 9, Helena Rut Örvarsdóttir 3, Esther Ragnarsdóttir 2, Nataly Sæunn Valencia 1, Stefanía Theodórsdóttir 1, Sólveig Lára Kjærnested 1, Guðrún Erla Bjarnadóttir 1. Eyjakonur endurheimtu toppsæti deildarinnar með öruggum átta marka sigri, 37-29, á ÍR á heimavelli. ÍBV er nú með 28 stig á toppnum, einu stigi á undan Íslands- og bikarmeisturum Gróttu. Ester Óskarsdóttir skoraði átta mörk fyrir ÍBV en 10 leikmenn liðsins komust á blað í leiknum í dag. Silja Ísberg var markahæst í liði ÍR með átta mörk en liðið er í erfiðri stöðu í 13. og næstneðsta sæti deildarinnar með einungis fimm stig.Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 8, Drífa Þorvalsdóttir 6, Telma Amado 6, Greta Kavaluskaite 5, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Kristrún Hlynsdóttir 2, Sandra Dís Sigurðardóttir 2, Vera Lopes 1, Selma Rut Sigurbjörnsdóttir 1.Mörk ÍR: Silja Ísberg 8, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 6, Karen Tinna Demian 5, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 4, Auður Pálsdóttir 3, Tanja Ösp Þorvalsdóttir 1, Margrét Valdimarsdóttir 1, Margrét Ýr Björnsdóttir 1. Þá rúllaði HK yfir Aftureldingu í Digranesinu, 27-12. Staðan var 16-8 í hálfleik en Mosfellingar skoruðu aðeins fjögur mörk í seinni hálfleik. HK á enn fína möguleika á að komast í úrslitakeppnina en liðið er með 10 stig í 9. sæti, tveimur stigum á eftir Fylki sem er í sætinu fyrir ofan. Emma Havin Sardardóttir skoraði sex mörk fyrir HK en Karen Kristinsdóttir og Sóley Ívarsdóttir komu næstar með fjögur mörk hvor. Hekla Daðadóttir var einu sinni sem oftar markahæst hjá Aftureldingu með fimm mörk. Liðið er rótfast í botnsætinu með aðeins þrjú stig.Mörk HK: Emma Havin Sardardóttir 6, Karen Kristinsdóttira 4, Sóley ÍVarsdóttir 4, Elva Arinbjarnar 3, Þórhildur Braga Þórðardóttir 3, Sigríður Hauksdóttir 2, Ósk Hind Ómarsdóttir 1, Kolbrún Arna Garðarsdóttir 1, Eva Hrund Harðardóttir 1, Birta Rún Grétarsdóttir 1, Elna Ólöf Guðjónsdóttir 1.Mörk Aftureldingar: Hekla Daðadóttir 5, Dagný Huld Birgisdóttir 2, Magnea Rós Svansdóttir 1, Íris Sigurðardóttir 1, Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir 1, Þóra María Sigurjónsdóttir 1.
Olís-deild kvenna Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira