Hagnaður Deloitte nær tvöfaldast ingvar haraldsson skrifar 3. febrúar 2016 09:00 Höfuðstöðvar Deloitte eru í Turninum í Kópavogi. vísir/gva
Ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte hagnaðist um 322,7 milljónir króna á síðasta rekstrarári sem lauk þann 31. maí 2015. Hagnaður félagsins á fyrra rekstrarári var 175 milljónir króna og því jókst hagnaðurinn um 85 prósent milli ára. Deloitte er í eigu D&T sf. sem er í eigu 36 einstaklinga. Stjórn félagsins leggur til að allt að 322 milljónir verði greiddar í arð, eða sem nemur nær öllum hagnaðinum. Á síðasta rekstrarári nam greiddur arður 159,2 milljónum króna. Greiddur arður 2013-2014 nam 120 milljónum. Tekjur Deloitte á síðasta rekstrarári námu 3.250 milljónum króna. Þar af námu tekjur af endurskoðun 1.506 milljónum en tekjur af annarri þjónustu 1.744 milljónum króna. Tekjurnar jukust um 234 milljónir króna milli ára. Eins og gefur að skilja er launakostnaður stærsti útgjaldaliður fyrirtækisins. Hann nam 2.213 milljónum króna, og hækkaði um 27 milljónir milli ára. Stöðugildum fækkaði hins vegar úr 191 í 173. Þá námu launagreiðslur til stjórnenda 207 milljónum króna en framkvæmdastjórum var fjölgað um einn. Rekstrarhagnaður Delottie nam 414 milljónum króna miðað við 236 milljóna hagnað á fyrra rekstrarári. Þá hækkaði annar rekstrarkostnaður lítillega og nam 590 milljónum. Eignir Deloitte nema tæplega 1,7 milljörðum króna. Þar af nemur handbært fé 259 milljónum króna og viðskiptakröfur tæplega 800 milljónum. Eigið fé Deloitte nam 567 milljónum króna en skuldir tæplega 1,2 milljörðum króna.
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Sjá meira