Lífið

Bein útsending: Milljarður Rís í Hörpu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mætingin hefur verið frábær undanfarin ár.
Mætingin hefur verið frábær undanfarin ár. Mynd/Hörður Ásbjörnsson
Dansbyltingin Milljarður Rís fer fram  í Hörpu í dag og verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi. Hátíðin hefst kl. 11.45 og er í boði UN Women á Íslandi og Sónar Reykjavík.

Beina útsendingu má sjá í spilaranum neðst í fréttinni.

Reiknað er með að nokkur þúsund Íslendingar og gestir stígi trylltan dans úti um allt land klukkan 11:45 til að mótmæla ofbeldi gegn konum um allan heim. Um er að ræða alheimsdansbyltinguna Milljarður Rís en reikna má með því að fjölmennast verði hér á landi í Hörpu.

Bein útsending verður frá Hörpu á Vísi og eiga því allir, hvort sem þeir eru fastir í vinnu eða eiga ekki heimangengt af öðrum ástæðum, kost á því að geta hækkað græjurnar í botn og stigið dans. Ókeypis er í Hörpu og sömuleiðis í bílastæði hússins. UN Women hvetur fólk til að koma gangandi eða nota almenningssamgöngur. Á þriðja þúsund manns mættu í Hörpu í fyrra en DJ Margeir sér um að halda dansgólfinu trylltu..

Þátttakendur eru hvattir til að taka myndir og myndbönd og birta á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #milljarðurris16 og #fokkofbeldi. 

Þetta er í fjórða sinn sem fólk frá yfir 200 löndum mæta og dansa fyrir hugrökkum konum um allan heim sem berjast gegn mótlæti, óréttlæti og misbeitingu í daglegu lífi. Við ætlum að veita þeim samstöðu og dansa af krafti. Hátt í 10 þúsund manns hafa komið saman síðastliðin fjögur ár og fylkt liði á dansgólfum landsins.

Hér að neðan má fylgjast með umræðunni á Twitter
Hér að neðan má sjá nýjan myndir sem koma inn á Instagram undir kassamerkinu #fokkofbeldi





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.