Læknar segja að gefa eigi reykingamönnum rafsígarettur Samúel Karl Ólason skrifar 28. apríl 2016 07:54 Í 200 blaðsíðna skýrslu segir að mögulega gæti það að reykja rafrettur, eða vaping, bætt líf milljóna. Vísir/Getty
Hvetja ætti reykingafólk til að reykja rafsígarettur og jafnvel á að gefa þeim slík tæki til að hjálpa þeim við að hætta að reykja. Royal College of Physicians, eða Konungleg samtök breskra lækna, segja rafsígarettur mun heilsusamlegri og þær hjálpi reykingamönnum við að hætta að reykja. Í 200 blaðsíðna skýrslu samtakanna segir að mögulega gæti það að reykja rafrettur, eða vaping, bætt líf milljóna. Þá er bent á að sú umræða að rafsígarettur leiði til almennra reykinga eigi ekki við rök að styðjast.BBC bendir þó á að reykingafólk í Bretlandi verði að kaupa sér rafrettur og geti ekki fengið þær frá heilbrigðisstofnunum. Fyrst þurfi rafrettur að vera skráðar sem hjálpartæki við því að hætta að reykja, sem felur í sér langt lagaferli. Frá því að sala rafretta hófst í Bretlandi árið 2007 hefur sala þeirra aukist jafnt og þétt. Frá 2012 hafa þær verið vinsælli en nikótín tyggjó og plástrar sem hjálpartæki reykingafólks við að hætta að reykja.Samkvæmt áðurnefndri skýrslu nota einn af hverjum tuttugu Bretum rafrettu og þar af eru nær allir að reyna að hætta reykja eða hættir að reykja hefðbundnar sígarettur. Þegar kemur að langtíma heilsuskaða segja læknarnir að rafrettur séu minnst 95 prósent öruggari en hefðbundnar sígarettur. Enn séu þó einhverjir óvissuþættir varðandi langtímaáhrif þeirra.
Rafrettur Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira