Gunnar: Besta leikhlé sem ég hef tekið Stefán Árni Pálsson skrifar 19. maí 2016 22:29 „
Þetta var frábær úrslitakeppni og frábær vetur hjá okkur,“ segir Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, eftir að liðið hafi tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld. Haukar unnu oddaleikinn á Ásvöllun í kvöld, 34-31, og voru sterkari allan leikinn. Liðið er einfaldlega með það besta á Íslandi. „Við erum búnir að vera stórkostlegir í allan vetur og þessi leikurinn kórónaði frábæran vetur, við spiluðum hann frábærlega.“ Gunnar segir að gott forskot Hauka í upphafi síðari hálfleiksins hafi lagt gruninn að þessum sigri í kvöld. „Það gaf okkur smá svigrúm til þess að gera mistök. Ef við þurfum að læra eitthvað frá þessu öllu saman þá er það að við þurfum að klára leikina betur.“ Hann segir að liðið hafi spilað allt einvígið vel gegn Aftureldingu. „Við mættum alveg ótrúlega vel undirbúnir og spennustigið var rétt hjá okkur. Maður sá það strax varnarlega að við vorum með þá og búnir að lesa þá vel.“ Eitt rosalegasta atvik leiksins gerðir þegar tæplega tvær mínútur voru eftir af leiknum. Þá voru Haukar með boltann og Gunnar tók leikhlé. Fáir í höllinni heyrðu í flautunni og brunaði Afturelding upp völlinn og skoraði. Margir héldu að staðan væri þá orðin 33-31 en svo var ekki. Þjálfari Haukar hafði náð að henda inn spjaldinu og leikhléið stóð. „Þetta var án efa besta leikhlé sem ég hef tekið á ferlinum. Það var heldur betur mikilvægt þegar upp var staðið.“
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Handbolti Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Enski boltinn „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ „Íslenska geðveikin sem við tölum oft um, þetta var hún“ „Erfitt að lýsa þessari stemningu sem við náðum upp í vörninni“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Tölurnar á móti Svíum: Viggó 11 af 11 í skotum og 23 fleiri stopp en Svíar „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ „Allt sem vantaði í síðasta leik var til staðar í dag“ Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 27-35 | Íslensku strákarnir sökktu Svíum Fram sótti sigur fyrir norðan og ÍR endaði langa taphrinu Slóvenar unnu upp fjögurra marka forskot Ungverja og fögnuðu sigri Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö „Vantar meiri leiðindi og fávitaskap frá okkur“ „Miklu betra lið en Króatía“ Norðmenn með flautuna í Malmö „Hann er örugglega góður pabbi“ „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna „Eitt besta lið í heimi“ „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Danir komnir í gang á EM EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili „Það vantaði baráttuna“ Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Valskonur sóttu sigur til Eyja í toppslagnum Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Anton og Jónas dæma mikilvægan leik hjá Alfreð Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Sjá meira