Childs Farm er náttúruleg sólarvörn fyrir börn 18. maí 2016 11:00 Sólvörn frá Childs Farm er góður kostur fyrir öll börn. Vörn sem unnin er úr náttúrulegum efnum.
KYNNING Mikilvægt er að verja börn gegn sólbruna. Fyrirtækið Childs Farm framleiðir vandaða sólarvörn fyrir börn sem unnin er úr eins náttúrulegum efnum og kostur er. Fyrirtækið er margverðlaunað fyrir hár- og húðvörur sínar sem eru mildar og öruggar. Childs Farm fyrirtækið var stofnað árið 2012 með það markmið að framleiða vörur sem henta vel viðkvæmri húð barna, sérstaklega þeim sem hættir til að fá exem. Nýlegar rannsóknir benda til þess að 30% íslenskra barna þjáist af exemi. Childs Farm vörur eru prófaðar og samþykktar af barnalæknum. Allar vörur fyrirtækisins er án aukefna eins og parabena, ekkert SLES er í þeim, engar steinefnaolíur eða tilbúin litarefni. Childs Farm barnavörurnar erta hvorki húðina né valda ofnæmisviðbrögðum.Frá bóndakonu Það var Joanna Jensen, bóndi í Bretlandi, sem á heiðurinn af framleiðslunni. Hún á tvær dætur sem báðar eru með viðkvæma húð og fíngert hár. Joanna hafði leitað lengi að vönduðum og hreinum barnavörum fyrir dætur sínar en það reyndist erfitt að finna slíkar vörur. Hún ákvað því að þróa sjampó með náttúrulegum efnum og bæta við það sínum eftirlætisolíum. Það var greinilegt að eftirspurn var eftir gæðavörum fyrir börn svo Joanna hélt þróuninni áfram. Hún framleiðir núna sjampó, næringu og flókasprey, freyðibað, líkamskrem, Nappy krem fyrir bleiusvæðið og síðan nýjasta vörurnar sem er sólvörn og After sun húðmjólk. Joanna hefur fengið mörg þekkt og viðurkennd verðlaun fyrir Childs Farm og um vörurnar hefur verið fjallað í helstu blöðum og tímaritum í Bretlandi. Þótt Childs Farm vörur séu framleiddar fyrir börn eru þær frábærar fyrir alla sem eru með viðkvæma húð, hvort sem þeir eru ungir eða gamlir. Náttúruleg innihaldsefnin eru mild og mjög áhrifarík í því að hreinsa húðina og gefa henni nauðsynlegan raka.Án eiturefna Það var fyrr á þessu ári sem Childs Farm sólarvörnin kom á markað. Allir foreldrar vilja vernda húð barna sinna gegn sólinni. Það er afar mikilvægt á okkar norðlægu slóðum að bera vel á börnin áður en þau fara út að leika sér. Sólvörnin hentar öllum börnum, bæði leikskólabörnum og þeim sem eru komin í grunnskóla. After Sun kremið hentar síðan vel þegar komið er inn, kremið róar húðina en það inniheldur aloe vera, kakósmjör og shea smjör sem var fyrst notað fyrir þúsundum ára í Egyptalandi til að vernda húðina fyrir sól, hita og vindi.Frábær vörn fyrir viðkvæma húð Joanna var fjögur ár að þróa sólvörnina. Hún vildi bjóða upp á góða vörn gegn hættulegum UVA- og UVB-geislum sólarinnar án þess að nota skaðleg efni. Eingöngu eru notuð náttúruleg efni sem hæfa öllum með viðkvæma húð eða exem. Sólvörnin er rakagefandi og inniheldur sömu efni og After Sun kremið. Childs Farm sólvörnin er 50+ og verndar börnin í sól, sjó, á ströndinni eða í leikskólanum. Sólvörnin er í hentugum umbúðum sem auðvelt er að hafa með sér hvert sem er. Að auki ilmar hún vel eins og aðrar vörur Childs Farm. Foreldrar eru meðvitaðir um aukefni í hinum ýmsu vörum. Fólk velur í auknum mæli vistvænar vörur sem eru lausar við óæskileg efni eins og paraben. Engin móðir vill að barnið hennar verði fyrir áhrifum af óæskilegum efnum. Þetta var Joanna Jensen meðvituð um þegar hún hóf framleiðslu á Childs Farm barnavörum. Sjálf segist hún hafa verið knúin áfram að löngun til að gefa börnum, hvort sem þau væru með eðlilega eða viðkvæma húð kost á vandaðri og náttúrlegri húð- og hárvöru. „Vörurnar okkar hafa gengist undir víðtæk klínísk próf og staðist allar þær kröfur sem við gerum til þeirra. Þess vegna getum við komið fram með eftirfarandi staðhæfingar,“ segir hún. * Hentar ungbörnum* Hentar viðkvæmri húð og húð sem er hætt við að fá exem* Húðlæknisfræðilega prófaðar og samþykktar* Samþykktar af barnalæknum* Milt og öruggt fyrir húðina* Engin paraben, ekkert SLES, engar steinefnaolíur eða tilbúin litarefni! Það er staðreynd að mjög mikilvægt er að vernda húð barna á unga aldri gegn sól. Með því að nota góða sólvörn er hægt að minnka áhættu á húðkrabbameini síðar á ævinni. Tilfellum húðkrabbameins hefur fjölgað mjög mikið á Íslandi. Við höfum sólina langt fram á kvöld á sumrin svo góð sólvörn ætti alltaf að vera við höndina. Vetrarsól er varasöm líka, sérstaklega ef fólk fer til fjalla á skíði. Nú geta foreldrar loksins keypt vandaða sólvörn fyrir börn sín, vörn sem er sérstaklega gerð fyrir viðkvæma húð ungbarna og unnin úr náttúrulegum efnum.Sólvörn og aðrar húð- og baðvörur frá Childs Farm fást í Lyfjum og heilsu, Lyfju, Fjarðarkaupum, stærri Hagkaups- og Krónuverslunum, Heimkaup.is og í sjálfstæðum apótekum um land allt.
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira