Garðar er kominn í Stjörnuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2016 09:15 Vilhjálmur Ingi Halldórsson formaður meistaraflokksráðs karla og Garðar Garðar Benedikt Sigurjónsson við undirritun samningsins. Mynd/Stjarnan
Garðar Benedikt Sigurjónsson, línumaðurinn öflugi úr Fram, hefur sagt skilið við Safamýrarliðið og ákveðið að spila með nýliðum Stjörnunnar í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Garðar hefur spilað síðustu ár með Fram í Safamýrinni en hann er uppalinn Stjörnumaður og hefur nú ákveðið að snúa heim aftur í Garðabæinn. Garðar verður þó ekki eini nýi leikmaður Garðabæjarliðsins á næstu leiktíð því von er á frekari liðstyrk. „Eru Stjörnumenn gríðarlega ánægðir með að hafa klófest eins sterkan leikmann og Garðar er. Er mikið vænst til Garðars í Stjörnunni og með tilkomu hans styrkist leikmannahópurinn töluvert þó er von á fleiri fréttum af leikmannamálum á næstu dögum," segir í fréttatilkynningu frá Stjörnunni. Garðar Benedikt Sigurjónsson skoraði 96 mörk í 26 leikjum með Fram í Olís-deildinni eða 3,7 mörk að meðaltali. Hann skorað 113 mörk tímabilið á undan eða 4,2 mörk í leik. Garðar spilaði síðast með Stjörnunni í 1. deildinni tímabilið 2010-11 en var þá í litlu hlutverki hjá liðinu. Hann fékk stóra tækifærið í Fram þar sem hann stóð sig vel. Stjarnan vann 18 af 21 leik í 1. deildinni á síðasta tímabili og tryggði sér með því sigur í deildinni og sæti í efstu deild.
Olís-deild karla Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Tímabært að breyta til Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Olís-deild karla: FH vann stórsigur í Breiðholti og önnur úrslit Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum Íslendingaliðin töpuðu bæði Ísland tapaði með minnsta mun Ekki haft tíma til að spá í EM Framarar náðu toppliðunum að stigum Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Viggó öflugur í dramatískum endurkomusigri Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Frábær sigur hjá Orra og félögum á móti PSG Kristján lét að sér kveða þegar sigurgangan hélt áfram Súrt kvöld fyrir Íslendingaliðin í Meistaradeildinni „Langstærsti búningasamningur sem HSÍ hefur gert“ Viktor mætir Aroni: „Hann var átrúnaðargoðið mitt“ Landsliðin spila í Adidas næstu árin „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Sjá meira