Jón Axel og Tryggvi Snær settu met með frammistöðunni gegn Rússlandi Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. júlí 2016 15:11 Jón Axel Guðmundsson og Tryggvi Þór Hlinason. vísir/stefán
Eins og kom fram í gær vann U20 ára landslið karla í körfubolta frækinn sigur á stórliði Rússlands á Evrópumótinu í Grikklandi, 71-65. Íslensku strákarnir voru 25-9 undir eftir fyrsta leikhluta en sneru svo taflinu sér í hag. Tveir leikmenn báru af í íslenska liðinu en það voru Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson og norðanmaðurinn hávaxni Tryggvi Snær Hlinason sem spilar með Þór á Akureyri. Jón Axel skoraði 32 stig, tók ellefu fráköst og stal fimm boltum en aldrei áður hefur nokkur drengur skorað jafnmikið í einum leik í lokakeppni EM U20 ára. Hinn 216 cm hái Tryggvi Snær, sem körfuboltamenn geta ekki beðið eftir að sjá í Dominos-deildinni í fyrsta sinn í vetur, tók þrettán sóknarfráköst en það er einnig met á mótinu, að því fram kemur á heimasíðu FIBA. Tryggvi Snær skoraði ellefu stig og tók í heildina 19 fráköst í þessum frábæra sigri, en strákarnir mæta Eistlandi í þriðja leik liðsins klukkan 15.45 að íslenskum tíma í dag. Jón Axel spilaði með Grindavík í Dominos-deildinni í vetur en samdi undir lok tímabilsins við Davidson-háskólann í Bandaríkjunum þar sem hann spilar næstu árin. Davidson er þekktastur fyrir að hafa alið af sér næst besta leikmann NBA-deildarinnar þessa dagana, Stephen Curry.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira