Stelpurnar hans Þóris sýndu enga miskunn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. ágúst 2016 21:46 Þórir er enn einu komin í undanúrslit á stórmóti. vísir/anton
Norska kvennalandsliðið í handbolta, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, tryggði sér sæti í undanúrslitum Ólympíuleikanna í Ríó með risasigri, 33-20, á Svíum í kvöld. Norska liðið hefur því komist í undanúrslit á sjö af átta stórmótum síðan Þórir tók við þjálfun þess 2009. Noregur varð Ólympíumeistari í Peking 2008 og í London fjórum árum seinna og miðað við frammistöðuna í dag er líklegt að þriðja gullmedalían bætist við í safnið í Ríó. Eins og tölurnar gefa til kynna voru yfirburðir norska liðsins í leiknum í kvöld miklir. Noregur skoraði fyrstu fjögur mörk leiksins og um miðjan fyrri hálfleik var staðan orðin 10-2. Tólf mörkum munaði á liðunum í hálfleik, 19-7, og seinni hálfleikurinn var því aðeins formsatriði sem þurfti að klára. Norsku stelpurnar gáfu hvergi eftir og þegar lokaflautið gall munaði 13 mörkum á liðunum, 33-20. Stine Bredal Oftedal var markahæst í norska liðinu með sex mörk en Heidi Löke og Camilla Herren komu næstar með fimm mörk hvor. Þá átti Kari Aalvik Grimsbö stórleik í marki Noregs og varði 18 skot (56%). Isabelle Gulldén bar af í sænska liðinu og skoraði níu af 20 mörkum þess. Holland og Frakkland tryggðu sér einnig sæti í undanúrslitum í dag. Það kemur svo í ljós seinna í kvöld hvort Rússland eða Angóla verður fjórða liðið í undanúrslitum en Noregur mætir sigurvegaranum úr þeim leik.
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Flugóður forseti FIFA Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira