Tónlistarmaðurinn Justin Bieber er á leiðinni til landsins í dag samkvæmt heimildum Vísis og bendir allt til þess að hann sé að lenda á Reykjavíkurflugvelli í hádeginu.
Komu kappans er beðið með mikilli eftirvæntingu en á milli 30 og 40 þúsund manns munu fara á tvenna tónleika Bieber í Kórnum á fimmtudags- og föstudagskvöld.
Einkaflugvél frá Los Angeles mun lenda á Reykjavíkurflugvelli í hádeginu og eru allar líkur á að kanadíska poppstjarnan sé þar á ferð. Að ofan má sjá beina útsendingu frá lendingu vélarinnar.
Uppfært klukkan 13.00.
Útsendingunni er nú lokið en upptökuna er að finna í spilaranum.
