Lífið

Barbara Barrie lést með að­stoð lækna

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Leikkonan Barbara Barrie á að baki sér langan feril í kvikmyndum, sjónvarpi og á sviði.
Leikkonan Barbara Barrie á að baki sér langan feril í kvikmyndum, sjónvarpi og á sviði. Ron Galella, Ltd./Ron Galella Collection via Getty Images

Leikkonan Barbara Barrie lést í gær í New York borg með aðstoð lækna. Barrie var mikill stuðningsmaður dánaraðstoðar en hún var orðin 95 ára gömul og hafði glímt við ólæknandi krabbamein í tólf ár. 

Barbara Barrie á að baki langan feril í sjónvarpi, kvikmyndum og á sviði. Hún var meðal annars tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 1979 fyrir hlutverk sitt sem Evelyn Stohler í kvikmyndinni Breaking Away, Emmy-verðlauna árið 1981 fyrir sama hlutverk í sjónvarpsþáttum sem byggðir voru á kvikmyndinni og Tony-verðlauna fyrir hlutverk Söruh í söngleiknum Company árið 1971. 

Þá lék hún Harriet Benjamin, móður Goldie Hawn, í kvikmyndinni Private Benjamin frá árinu 1980 en myndin naut mikilla vinsælda á sínum tíma. Hún fór með veigamikil hlutverk í sjónvarpsseríunum Barney Miller og Suddenly Susan og brá fyrir í minni hlutverkum í seríunum Nurse Jackie og Law & Order: SVU. 

Hún giftist leikstjóranum, leikaranum og framleiðandanum Jay Malcolm Harnick árið 1964 og eignuðust þau saman tvö börn. Harnick lést árið 2007. 

Í spilaranum hér að neðan má sjá tveggja ára gamalt viðtal við Barböru Barrie í þættinum How Art Changed Me:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.