Jón Arnór: Sérstakt að gera þetta tvisvar í röð Ingvi Þór Sæmundsson í Laugardalshöll skrifar 17. september 2016 18:27 Jón Arnór skoraði 10 stig í dag. mynd/bára dröfn kristinsdóttir
Jón Arnór Stefánsson skoraði síðustu fjögur stig Íslands í sigrinum á Belgíu í Laugardalshöllinni í dag. Með sigrinum tryggði Ísland sér sæti á EM, annað skiptið í röð. „Þetta er frábær tilfinning. Hún var góð síðast en að gera þetta tvisvar í röð er mjög sérstakt,“ sagði Jón Arnór í samtali við Vísi eftir leik. „Sérstaklega þar sem ég mun væntanlega spila mína síðustu landsleiki á stórmóti. Það er mjög dýrmætt. „Þetta var alltaf á planinu. Eftir síðasta leikinn í Berlín voru menn staðráðnir í að komast aftur á EM, tilfinningin var það góð,“ bætti reynsluboltinn við. Jón Arnór segir frábært að hafa tryggt sér sætið á EM með sigri, þótt tap með litlum mun hefði líklega dugað til að komast áfram. „Við fórum í þennan leik til að vinna hann. Við fengum ekki að vita nein úrslit fyrir leikinn. Þeir eru með hörkulið og það sýnir mikinn andlegan styrk að vinna þá. Við vorum líka hvattir vel áfram af fullri höll og erum þakklátir fyrir það,“ sagði Jón Arnór sem hrósaði ungu mönnunum í íslenska liðinu. „Það er gaman að sjá hvernig ungu strákarnir í liðinu hafa stigið upp og dregið vagninn. Og þótt það sé ekki hægt að kalla hann ungan, þá er Hlynur [Bæringsson] búinn að vera frábær í undankeppninni. Það er mjög gott því ég hef verið í lélegu standi.“ Þrátt fyrir að vera öruggir með EM-sætið spiluðu Belgarnir af fullum krafti og gáfu íslenska liðinu engan afslátt í leiknum í dag. „Við vissum að þeir ætluðu að leggja allt í þetta. Þeir voru með peningabónusa undir og ætluðu að fara taplausir í gegnum riðilinn,“ sagði Jón Arnór að lokum.
EM 2017 í Finnlandi Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Fleiri fréttir Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Sjá meira