ISS Ísland ehf. sérfræðingar í þrifum í matvælafyrirtækjum 3. október 2016 12:00 "Við erum sérfræðingar í þrifum í matvælafyrirtækjum þar sem skiptir máli að vinna samkvæmt ströngum umgengnis- og verklagsreglum.“
KYNNING: ISS hefur sinnt þrifum í matvælafyrirtækjum og í fiskiðnaði frá árinu 2000. Fyrirtækið er hluti af alþjóðlegu keðjunni ISS A/S sem er með 515 þúsund starfsmenn í vinnu í 53 löndum. Hjá ISS á Íslandi starfa 720 manns og þar af starfa um 70 eingöngu við þrif í kjöt- og fiskvinnslufyrirtækjum. „Vöxtur fyrirtækisins hér á landi hefur verið nokkuð stöðugur og jafn undanfarin ár,“ segir Björk Baldvinsdóttir, sviðsstjóri sölu –og viðskiptaþróunar hjá ISS á Íslandi.Björk Baldvinsdóttir, sviðsstjóri sölu- og viðskiptaþróunar. mynd/iss„ISS hefur margra ára reynslu í þrifum. Við erum sífellt að þróa tækni, áhöld, aðferðir og verklag til að auka öryggið enn meira og stuðla að betri og hagkvæmari vinnubrögðum. Við þrifin notum við eigin búnað sem er sérhannaður til að tryggja að viðkvæm vinnslutæki skemmist ekki. Þetta snýst um betri ferla, betra gæðakerfi og skilvirkari vinnubrögð og síðast en ekki síst um þjálfun starfsfólks.“Strangt verklag „Við erum sérfræðingar í þrifum í matvælafyrirtækjum þar sem skiptir máli að vinna samkvæmt ströngum umgengnis- og verklagsreglum og öll skráning og skjalfesting er gríðarlega mikilvæg. Það felst öryggi í því fyrir stjórnendur í matvælaiðnaði að hafa aðgang að fyrirtæki með sérhæft starfsfólk til að sjá um þennan mikilvæga þátt í starfseminni. Þetta skiptir ekki síst máli fyrir þá sem selja afurðir á kröfuharða erlenda markaði. Við leggjum áherslu á að aðstoða fyrirtækin þannig að stjórnendur geti einbeitt sér betur að kjarnastarfseminni,“ segir Björk. Haukur Björnsson, þjónustustjóri matvælasviðs ISS.„Þjónustustjóri matvælasviðs ISS er Haukur Björnsson en hann er þrautreyndur í faginu og býr yfir gríðarlegri reynslu og víðtækri þekkingu á öllu sem lýtur að fiskvinnslu eftir áratuga störf í greininni.“ Mörg stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins nýta sér þjónustu ISS á Íslandi. Þar má meðal annars nefna HB Granda, Síldarvinnsluna í Neskaupstað og Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingar er að finna á www.iss.is
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira