Dramatík og áhorfendamet þegar Dagný og félagar biðu lægri hlut Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. október 2016 23:45 Dagný kom inn á þegar tuttugu mínútur lifðu af venjulegum leiktíma og skömmu síðar jöfnuðu heimakonur metin.
Dagný Brynjarsdóttir og liðsfélagar hennar í Portland Thorns féllu úr leik í undanúrslitum National Womens Soccer League í Bandaríkjunum í kvöld eftir 4-3 tap gegn Western New York Flash. Leikurinn var stórkostleg skemmtun en leikurinn fór fram að viðstöddum rúmlega tuttugu þúsund stuðningsmönnum heimaliðsins á Providence Park í Portland. Um aðsóknarmet er að ræða í úrslitakeppni NWSL en Portland sigraði í deildarkeppninni á dögunum. Gestirnir frá New York komust í 2-0 í fyrri hálfleik með mörkum Sam Mewis og Makenzy Doniak. Heimakonur, vel studdar á heimavelli sínum, minnkuðu muninn á 39. mínútu þegar fyrirliðinn Christine Sinclair skoraði fallegt mark. Dagný kemur inn á.Dagný kom inn á sem varamaður hjá Portland á 70. mínútu og skömmu síður dró til tíðinda. Emily Sonnet jafnaði á 77. mínútu eftir mikla baráttu í teig gestanna. Skömmu áður nældi Dagný sér í gult spjald. Framlengja þurfti leikinn og komust gestirnir aftur tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik framlengingar með snyrtilegum mörkum. Liðsmenn Portland lentu endurtekið í vandræðum með innköst gestanna en þrjú af fjórum mörkum Flash komu eftir löng innköst. Aftur komst Portland inn í leikinn á lokamínútu fyrri hálfleiks framlengingar þegar Lindsey Horan af stuttu færi eftir að Dagný vann skallaeinvígi í teignum. Síðari hálfleikur framlengingar var æsispennandi og fengu heimakonur færi til að jafna metin. Næst komust þær þegar skalli sem stefndi í netið var bjargað á síðustu stundu. En þögn sló á Providence Park þegar dómari leiksins flautaði til leiksloka eftir 123. mínútna leik, gestirnir fögnuðu þó vel enda komnir í úrslitaleikinn gegn Washington Spirit í Houston næstu helgi. Dagný Brynjarsdóttir var að ljúka sínu fyrsta tímabili í atvinnumennskunni vestanhafs. Hún skoraði fimm mörk og lagði upp tvö og má vel við una við sína frammistöðu á meðal þeirra bestu í NWSL.
Mest lesið Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Utan vallar: Karl, trans eða einfaldlega kona? Sport KSÍ dregur úr verðhækkunum Íslenski boltinn Vann troðslukeppnina með látum Körfubolti Mark dæmt af Orra á Bernabéu Fótbolti Of seinn til að sjást í mynd: „Þetta er bara á allt of lágu plani“ Körfubolti Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Sport Fleiri fréttir Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum KSÍ dregur úr verðhækkunum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Skoraði fyrir bæði lið í stórleiknum Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Mark dæmt af Orra á Bernabéu Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki KR lenti tveimur undir en er enn án taps Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Keflavík og HK á sigurbraut Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Sandra María mátti sætta sig við tap gegn sínu gamla liði Valgeir náði mikilvægum áfanga eftir krefjandi tíma Jón Dagur skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrsta leik sínum með Brann Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Sjá meira