Kvikmyndavefurinn Klapptré hefur heimildir fyrir því að tökur þriðju seríu Fortitude munu hefjast á Reyðarfirði eftir áramót en Pegasus þjónustar verkefnið. Snorri Þórisson, forstjóri Pegasus, sagði þó í samtali við Vísi að hann vildi ekki fullyrða neitt um málið á þessu stigi.
Önnur sería þáttaraðarinnar Fortitude verður frumsýnd í janúar á næsta ári. Þáttaröðin var að mestu leyti tekin upp á Reyðarfirði síðasta vetur. Nýjustu stiklu seríunnar má sjá hér.
Með hlutverk í annarri seríu þáttaraðarinnar fara meðal annars þau Sofie Gråbøl og hinn íslenski Björn Hlynur Haraldsson. Stórleikarinn Dennis Quaid fer einnig með hlutverk ásamt Michelle Fairley sem þekkt er fyrir leik sinn í Game of Thrones.
Sjöunda þáttaröð Game of Thrones mun einnig vera tekin upp hér á landi en tökur hefjast í janúar á næsta ári. Tökustaðir þáttanna munu meðal annars vera við Skaftafell og á Þingvöllum.
Þriðja sería Fortitude að öllum líkindum tekin upp hér á landi

Tengdar fréttir

Tökur á Fortitude hefjast á Reyðarfirði á morgun
Fyrri tökulotan á sjónvarpsþáttunum Fortitude hefst á Reyðarfirði á morgun en þetta kemur fram í frétt á vef Fjarðarbyggðar.

Tökur á Fortitude líkt og vertíð fyrir Fjarðabyggð
Um 150 manna tökulið er nú að störfum á Reyðarfirði. Bæjarstjóri segir samstarfið ganga vel.

Glæný stikla úr Fortitude: Austurlandið í aðalhlutverki
Í vetur fóru fram tökur á annarri seríu Fortitude hér á landi en þær fóru fram á Austurlandi.

Fortitude aftur til Ísland: Hlutverk Björns Hlyns stækkar
Fyrsta þáttaröð var að hluta til tekin upp á Reyðafirði.

Önnur þáttaröð af Fortitude staðfest
Þættirnir voru meðal annars teknir upp á Reyðarfirði og Íslendingur samdi tónlistina.

Ánægður með örlæti íbúa á Reyðarfirði
Trevor Hopkins er einn af framleiðendum bresku þáttanna Fortitude sem teknir eru upp á Reyðarfirði. Hann fer fögrum orðum um Ísland.