Grétar Ari aftur í Hauka Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. október 2016 12:08 Markverðir Hauka, Giedrius Morkunas og Grétar Ari Guðjónsson. vísir/anton
Grétar Ari Guðjónsson er kominn aftur til Hauka eftir að félagið kallaði á hann úr láni frá Selfyssingum, þar sem hann hefur spilað í upphafi tímabilsins í Olís-deild karla. Þetta staðfesti Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, í samtali við íþróttadeild 365 í dag. Grétar Ari hefur verið lykilmaður með Selfyssingum sem hafa komið á óvart í Olís-deildinni í haust. Liðið er í öðru sæti deildarinnar með tíu stig en Haukar eru í því sjöunda með átta. Giedrius Morkunas hefur verið aðalmarkvörður Hauka undanfarin ár en Einar Ólafur Vilmundarson hefur einnig spilað í marki Haukanna í haust.Leið ekki vel utan vallar „Það var Grétar Ari sjálfur sem bað um að fá að fara til Selfoss því hann vildi frá fleiri mínútur,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, í samtali við Vísi í dag. „En það var svo hann sem kom til okkar að fyrra bragði og sagðist vilja koma aftur í Hauka. Honum gekk vel inni á vellinum en utan vallar gekk lífið ekki nógu vel,“ sagði Gunnar enn fremur. „Þetta er ungur strákur sem var að flytja að heiman í fyrsta skiptið og það gekk ekki nógu vel að búa einn. Þetta snýst því ekkert um Selfyssinga enda allt í toppstandi innan félagsins.“Ákvörðun stjórnar og Grétars Ara Gunnar segir að stjórn handknattleiksdeildar hafi ákveðið að kalla hann til baka úr láni, í samráði við Grétar Ara sjálfan. „Við höfum ekki verið nógu ánægðir með markvörsluna eins og hún hefur verið það sem af er tímabili. Það var því ákveðið að það væri best ef hann myndi koma heim.“ Gunnar skilur vel að Selfyssingar eru óánægðir með framvindu mála. En hann gerir ráð fyrir því að Einar Ólafur fari nú til Selfoss. „Líklegast er að við munum losa hann undan samningi svo að hann geti farið til Selfoss. Við viljum Selfyssingum ekkert illt.“
Olís-deild karla Mest lesið UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Fótbolti Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti Leikmenn hafa neitað að koma til Juventus Fótbolti Klifraði upp í stúku og réðst á stuðningsmann eftir að hafa verið skipt af velli Fótbolti Írskur hnefaleikakappi í „alvarlegu“ ástandi eftir að hafa rotast í bardaga Sport Freyr tapaði gegn sínu gamla félagi þar sem Kristall var á skotskónum Fótbolti Fleiri fréttir Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira