Sá elsti til að skora fimm mörk í Evrópuleik | Sjáðu fimmuna sögulegu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2016 20:00
Aritz Aduriz var maður gærkvöldsins í Evrópudeildinni þegar hann skoraði öll fimm mörk Athletic Bilbao í 5-3 sigri á belgíska félaginu Genk en hann setti með því nýtt met. Aduriz er 35 ára gamall og varð með þessu elsti leikmaðurinn sem nær að skora fimm mörk í einum Evrópuleik. Aduriz bætti met Sovétmannsins Eduard Markarov sem var 33 ára þegar hann skoraði fimm mörk fyrir Ararat Yerevan í 9-1 sigri á Anorthosis Famagusta frá Kýpur í Evrópukeppni bikarhafa 1975-76. Aritz Aduriz er 36. leikmaðurinn sem skorar fimm mörk í einum og sama Evrópuleiknum en sá fyrsti frá því að Luiz Adriano skoraði fimm fyrir Shakhtar í Meistaradeildinni 2014. Leikmaður hafði aldrei náð að skora fimm mörk í leik í Evrópudeildinni en síðasta fimman í UEFA-bikarnum var hjá Eldar Hadzimehmedovic árið 2003. Aritz Aduriz skoraði reyndar þrjú af fimm mörkum sínum úr vítaspyrnum. Hann hefur raðað inn mörkum í Evrópudeildinni undanfarin tvö eða samtals 15 mörk í 18 leikjum. Aritz Aduriz er fæddur í febrúar 1981 og það styttist því í 36 ára afmælið. Hann er að spila sitt fimmta tímabil með Athletic Bilbao eftir að hafa komið til liðsins 31 árs gamall. Aduriz hefur skoraði 5 mörk í 9 fyrstu leikjunum í spænsku deildinni á þessu tímabili en hann var með 20 mörk í 34 leikjum í deildinni á síðustu leiktíð.Vísir/Getty
Evrópudeild UEFA Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Sjá meira