Jólakjóllinn er kominn í hús Guðný Hrönn skrifar 22. desember 2016 11:00 Hildur Sif Hauksdóttir heldur úti heilsusíðunni healthbyhildur á Instagram. Vísir/GVA
Heilsugúrúinn og fagurkerinn Hildur Sif Hauksdóttir er komin með jóladressið. Eftir dágóða leit fann hún hinn fullkomna jólakjól sem mun vera afar þægilegur og smart. Hildur Sif kveðst vera með mínímalískan stíl og leggja mikla áherslu á þægindi þegar hún kaupir sér föt. „Þægindi eru lykilatriði á aðfangadag ef maður á að endast í dressinu fram á kvöld,“ segir Hildur, sem mun klæðast kjól frá Samsøe & Samsøe um jólin. „Ég fann þennan rosa flotta kjól í Karakter í Smáralindinni. Hann er klassískur í sniðinu og mjög þægilegur.“ Hildur kaupir sér ávallt nýtt dress fyrir jólin. „Já, það hefur verið ákveðin hefð að kaupa sér eitthvað fínt fyrir jólin til að gera kvöldið extra sérstakt. Eftirminnilegasta dress sem ég hef klæðst á aðfangadag er sérsaumaður gullkjóll sem amma mín saumaði á mig og systur mína þegar við vorum litlar, mér þykir rosa vænt um þann kjól.“Bakpoki frá Stellu McCartney er á óskalistanum.Aðspurð út í bestu tískujólagjöf sem hún hefur fengið kemur gervipels úr Topshop fyrst upp í huga Hildar. „Ég fékk hann frá kærastanum mínum fyrir nokkrum árum. Ein af mest notuðu flíkum sem ég á og ég nota hann allan ársins hring. Einnig eru sólgleraugu frá Valentino í miklu uppáhaldi, þau gaf ég sjálfri mér fyrir einu ári síðan.“ Hvað er svo á óskalistanum hjá fagurkeranum Hildi? „Svartur Fallabella-bakpoki frá Stellu McCartney, skórnir Nike Air Max 95 premium, Organic Tonic maski frá Mario Badescu og svo er ég líka mjög ástfangin af úlpunni Hofsjökli í sérstakri útgáfu frá 66°Norður. Þetta er eitthvað af því sem er á óskalistanum mínum þessa stundina.“
Jólafréttir Mest lesið Svona gerirðu graflax Jól Rauðir og hvítir pakkar í ár Jól Jólabrauðterta með hamborgarhrygg Jólin Hugleiðingar um aðventu Jól Eitt deig – þrenns konar smákökur Jól Jóladagatal Vísis: Þegar upp úr sauð hjá Árna Johnsen og Rottweilerhundunum Jólin Blandaður jólamatur - Gæsabollur og reykt gæsasalat Jólin Látlaust og stílhreint í ár Jólin Er enn að skapa eigin hefðir Jól Jólaskrautið þarf að vekja góðar og hlýjar minningar Jól