Guardiola: City á ekki sömu sögu og Barca, Bayern eða United Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. janúar 2017 09:45
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, viðurkennir að sitt félag eigi ekki sömu sögu og erkifjendurnir í Manchester United og það gæti tekið áratug að komast á sama stall United. City er búið að vinna ensku úrvalsdeildina í tvígang, enska bikarinn einu sinni og deildabikarinn tvisvar sinnum á síðustu sex árum en Guardiola telur að liðið þurfi að spila í Meistaradeildinni reglulega næsta áratuginn til að komast á sama stall og stærstu félög Evrópu.Sjá einnig:Sjáðu stórvandræðalegt viðtal við Guardiola: Þú ert blaðamaðurinn City er búið að vera í Meistaradeildinni á hverju ári síðan 2010 og komst í undanúrslitin á síðustu leiktíð undir stjórn Manuel Pellegrini. Þar féll enska liðið úr leik gegn Real Madrid sem síðar stóð uppi sem sigurvegari. „Það er ekki sama sagan sem fylgir okkar treyju og hjá Barcelona, Juventus, Bayern München eða Manchester United. Við höfum ekki unnið jafnmarga titla,“ er haft eftir Guardiola í Daily Mirror. „Þetta snýst um að vera í Meistaradeildinni á hverju ári næsta áratuginn. Það er mikilvægara fyrir þetta félag en að vinna einn titil. Trúið mér, það skiptir meira máli.“ „Við verðum að sannfæra fólk um að þetta er frábært félag og stuðningsmennirnir líka. Það verða allir að trúa að þetta félag sé gott og leikmennirnir séu góðir,“ segir Pep Guardiola. Eftir tap gegn Liverpool komst City-liðið aftur á sigurbraut á mánudaginn þegar það lagði Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley, 2-1. Lærisveinar Guardiola eru í þriðja sæti með 42 stig, sjö stigum á eftir Chelsea sem mætir Tottenham í stórleik í kvöld.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu stórvandræðalegt viðtal við Guardiola: Þú ert blaðamaðurinn Pep Guardiola var ekki í stuði fyrir spurningar í sjónvarpsviðtali eftir 2-0 sigur Manchester City á Burnley í gær. 3. janúar 2017 10:00 Guardiola trylltist eftir tapið gegn Liverpool Manchester City féll úr hópi fjögurra efstu liða ensku úrvalsdeildarinnar og Pep hellti sér yfir menn á Anfield. 2. janúar 2017 20:45 Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúla 1 Atlético burstaði Barcelona í undanúrslitum Fótbolti Norski snillingurinn hjálpaði Svíum að vinna gullverðlaun Sport Ísland veit hvaða andstæðingar bíða í C-deildinni Fótbolti „Ólympíuverðlaununum var stolið frá mér“ Sport Uppgjörið: Valur - ÍA 102-85 | Valsmenn aftur á sigurbraut Körfubolti Hent út af ÓL vegna hjálmsins Sport „Ekki besta liðið í kvöld en við vorum verri en þeir“ Sport Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Enski boltinn Fleiri fréttir Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjá meira
Sjáðu stórvandræðalegt viðtal við Guardiola: Þú ert blaðamaðurinn Pep Guardiola var ekki í stuði fyrir spurningar í sjónvarpsviðtali eftir 2-0 sigur Manchester City á Burnley í gær. 3. janúar 2017 10:00
Guardiola trylltist eftir tapið gegn Liverpool Manchester City féll úr hópi fjögurra efstu liða ensku úrvalsdeildarinnar og Pep hellti sér yfir menn á Anfield. 2. janúar 2017 20:45