Bayern München gefur Swansea leyfi til að tala við Clement Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2017 15:00 Carlo Ancelotti hefur unnið mikið með Paul Clement (til hægri). Vísir/Getty
Það lítur allt út fyrir það að Gylfi Þór Sigurðsson og félagar séu að fá nýjan knattspyrnustjóra. Paul Clement, aðstoðarmaður Carlo Ancelotti hjá þýska stórliðinu Bayern München, hefur fengið leyfi til að ræða við enska úrvalsdeildarliðið Swansea City. Lið Gylfa Þórs Sigurðssonar er að leita sér að nýjum knattspyrnustjóra eftir að félagið lét Bob Bradley fara á milli jóla og nýárs. Liðið er í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og nýr stjóri þarf því að hefja björgunaraðgerðirnar hið snarasta. Swansea City ræddi við Paul Clement áður en félagið réði Bob Bradley í október en ákvað að bjóða Bandaríkjamanninum starfið. Það gekk þó ekki vel og Bob Bradley var rekinn eftir aðeins 85 daga í starfi. Swansea vann aðeins 2 af 11 leikjum sínum undir hans stjórn og fékk á sig 29 mörk í þeim. Velska félagið hefur þar með rekið tvo knattspyrnustjóra á þessu tímabili því Ítalinn Francesco Guidolin tók pokann sinn í byrjun október. Paul Clement er 44 ára gamall Englendingur sem hefur unnið með Carlo Ancelotti hjá Chelsea, Paris Saint-Germain, Real Madrid og Bayern München. Hann var einn og óstuddur hjá Derby County í ensku b-deildinni tímabilið 2015-16 en var rekinn í febrúar eftir 14 sigra, 12 jafntefli og 7 töp í 33 leikjum. Nú fær Paul Clement tækifæri til að sýna sig og sanna í ensku úrvalsdeildinni því úr þessu kemur fátt í veg fyrir það að hann taki við liði Swansea.
Enski boltinn Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúla 1 Trump forseti náðar fimm fyrrum leikmenn Sport Atlético burstaði Barcelona í undanúrslitum Fótbolti Áfrýjar brottvísun af Ólympíuleikunum til Íþróttadómstólsins Sport Norski snillingurinn hjálpaði Svíum að vinna gullverðlaun Sport „Ekki besta liðið í kvöld en við vorum verri en þeir“ Sport Hent út af ÓL vegna hjálmsins Sport „Ólympíuverðlaununum var stolið frá mér“ Sport Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Enski boltinn Fleiri fréttir Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjá meira