Ronaldo Koeman fagnaði sigri á móti gamla liðinu sínu | Úrslitin í enska í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2017 17:00 Enner Valencia, Leighton Baines og Kevin Miralles fagna einu marki Everton í dag. vísir/getty
Everton og West Brom Albion bættu bæði stöðu sína í sjöunda og áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með góðum heimsigrum í dag. Bæði liðin skoruðu þrjú mörk í seinni hálfleiknum og tryggðu sér með því þrjú góð stig. Þau hafa því bæði gott forskot á liðin í næstu sætum fyrir neðan en eiga jafnframt aðeins í því að ná efstu sex liðunum. Enner Valencia, Leighton Baines og Romelu Lukaku skoruðu allir á síðustu sautján mínútum og tryggðu Everton 3-0 sigur á Southampton. Ronald Koeman fagnaði þar með sigri á móti sínum gömlu lærisveinum í Southampton. West Bromwich Albion lenti undir í fyrri hálfleik og var undir í tæpan hálftíma en snéri leiknum við í seinni hálfleik og vann 3-1 sigur á Hull. Chris Brunt, Gareth McAuley og James Morrison skoruðu mörkin. Liverpool tapaði dýrmætum stigum í 2-2 jafntefli á útivelli á móti Sunderland en Sunderland-liðið er enn í fallsæti þrátt fyrir jafnteflið. Jóhann Berg Guðmundsson fiskaði Fernandinho útaf með rautt spjald á 31. mínútu en það dugði þó ekki Burnley sem tapaði 2-1 á heimavelli á móti tíu mönnum Manchester City. Bæði mörk City komu með fjögurra mínútna millibili og Jóhanni var skipt af velli á milli þeirra. Síðasti leikur dagsins er síðan á milli West Ham og Manchester United.Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í dag:Middlesbrough - Leicester 0-0West Bromwich - Hull 3-1 0-1 Robert Snodgrass (20.), 1-1 Chris Brunt (49.), 2-1 Gareth McAuley (62.), 3-1 James Morrison (73.)Man. City - Burnley 2-1 1-0 Gaël Clichy (58.), 2-0 Sergio Agüero (62.), 2-1 Ben Mee (70.). Jóhann Berg Guðmundsson fiskaði Fernandinho útaf með rautt spjald á 31. mínútu.Everton - Southampton 3-0 1-0 Enner Valencia (73.), 2-0 Leighton Baines, víti (81.), 3-0 Romelu Lukaku (89.)Sunderland - Liverpool 2-2 0-1 Daniel Sturridge (20.), 1-1 Jermain Defoe, víti (25.), 1-2 Sadio Mané (72.), 2-2 Jermain Defoe, víti (84.)
Enski boltinn Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúla 1 Atlético burstaði Barcelona í undanúrslitum Fótbolti Norski snillingurinn hjálpaði Svíum að vinna gullverðlaun Sport „Ólympíuverðlaununum var stolið frá mér“ Sport Uppgjörið: Valur - ÍA 102-85 | Valsmenn aftur á sigurbraut Körfubolti „Ekki besta liðið í kvöld en við vorum verri en þeir“ Sport Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Enski boltinn Hent út af ÓL vegna hjálmsins Sport Ísland veit hvaða andstæðingar bíða í C-deildinni Fótbolti Fleiri fréttir Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjá meira