Costa sendir Mourinho pillu: „Alltaf hægt að treysta á Conte“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. janúar 2017 12:15 Diego Costa og José Mourinho unnu deildina saman en svo fór að halla undan fæti. vísir/getty
Diego Costa, framherji Chelsea, var ekki langt frá því að yfirgefa Lundúnarliðið í sumar og ganga aftur í raðir Atlético Madríd þar sem hann vakti fyrst heimsathygli. Costa er búinn að vera frábær á leiktíðinni og skora fimmtán mörk fyrir Chelsea sem er búið að vinna þrettán leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni og trónir á toppi hennar. Spænski framherjinn var aðeins búinn að skora þrjú mörk fyrir Chelsea áður en José Mourinho var rekinn sem knattspyrnustjóri liðsins í desember 2015 en eftir það fór Costa í gang og skoraði á endanum 16 mörk. Costa segist ánægðari núna hjá Chelsea en áður og sendir Mourinho þokkalega pillu í viðtali við Sky Sports þar sem hitað er upp fyrir stórleik Tottenham og Chelsea sem fram fer á miðvikudagskvöldið. Um leið hrósar hann Ítalanum Antonio Conte, knattspyrnustjóra félagsins. „Conte er maður sem leikmennirnir geta treyst á. Líka á erfiðum stundum,“ segir framherjinn. „Hefði ég getað farið í sumar? Já, ég var við það að fara. Það munaði ekki miklu en ég er ánægður hérna.“ „Ég vildi fara og átti möguleika á því að fara aftur til Atético. Það voru ýmsar ástæður fyrir því að ég vildi fara en það var ekki út af Chelsea. Ég finn bara fyrir ást frá stuðningsmönnum og er núna mjög ánægður að vera leikmaður Chelsea.“ Antonio Conte tók við Chelsea-liðinu í sumar þegar hann kom af EM þar sem hann stýrði ítalska landsliðinu í síðasta sinn. Eftir sæmilega byrjun tók Chelsea á mikinn sprett og er nú búið að vinna þrettán leiki í röð. „Sannleikurinn er sá að stjórinn kann á leikmennina og er alltaf að grínast með okkur sem er gott. Hann er ekki bara stjórinn okkar heldur maður sem hægt er að tala við á erfiðum stundum. Hann er rólegur og maður sér að fólk elskar hann alltaf meira og meira,“ segir Diego Costa.
Enski boltinn Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúla 1 Atlético burstaði Barcelona í undanúrslitum Fótbolti Norski snillingurinn hjálpaði Svíum að vinna gullverðlaun Sport „Ólympíuverðlaununum var stolið frá mér“ Sport Uppgjörið: Valur - ÍA 102-85 | Valsmenn aftur á sigurbraut Körfubolti „Ekki besta liðið í kvöld en við vorum verri en þeir“ Sport Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Enski boltinn Hent út af ÓL vegna hjálmsins Sport Ísland veit hvaða andstæðingar bíða í C-deildinni Fótbolti Fleiri fréttir Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjá meira