Tveir forsetar í Gambíu Samúel Karl Ólason skrifar 19. janúar 2017 17:18 Adama Barrow sór embættiseið í Senegal í dag. Vísir/AFP
Tveir forsetar eru nú í Gambíu. Adam Barrow, sem vann forsetakosningar þar í landi í desember, sór embættiseið í sendiráði Gambíu í Senegal í dag. Yahya Jammeh, sem tapaði kosningunum, hefur ekki viljað víkja úr embætti. Nágrannaríki Gambíu eru í viðbragðsstöðu, en þau hafa farið fram á blessun Sameinuðu þjóðanna við hernaðaraðgerðum, neiti Jammeh að víkja.Jammeh tók við völdum í landinu árið 1994 í tiltölulega friðsömu valdaráni. Andstæðingur hans, Adama Barrow, vann óvæntan sigur í forsetakosningum í desember. Jammeh hefur neitað að víkja en til stóð að Barrow tæki við völdum í dag, sem hann gerði, en á óhefðbundinn hátt. Honum hafði verið gefinn frestur til miðnættis í gær en þrátt fyrir viðræður og að Senegal færði hermenn að landamærum Gambíu, neitaði hann að víkja. Samkvæmt Reuters er Jammeh orðinn verulega einangraður og hafa fjölmargir yfirgefið ríkisstjórn hans. Honum tókst þó að lýsa yfir neyðarástandi í landinu og fékk þingið til að samþykkja að hann gæti setið þrjá mánuði til viðbótar á meðan það sé í gildi.Adama Barrow is being sworn in as President of The #Gambia. He's in the country's embassy in #Senegal https://t.co/PJkP15BC9x— Sky News (@SkyNews) January 19, 2017
Gambía Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Erlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Erlent Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Innlent Fleiri fréttir Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Týndur í sex daga en komst einn niður af Everest Taívanar líta til Úkraínu og Íran Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Trump verður að leita samþykkis þingsins fyrir aðgerðum í Íran Samþykkja að koma á vopnahléi Vilja banna rússneska túrista Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Sjá meira