Nadal vann í dramatískum maraþonleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. janúar 2017 13:58 Rafael Nadal fagnar sigri í dag. Vísir/Getty
Rafael Nadal tryggði sér dramatískan sigur á Grigor Dimitrov frá Búlgaríu í undanúrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis í morgun. Spánverjinn Nadal fagnaði vel og innilega í leikslok enda búinn að glíma við erfið meiðsli í langan tíma og hafði ekki komist í úrslitaleik á risamóti síðan 2014. Nadal er einn sigursælasti tenniskeppandi allra tíma og hefur komist í úrslit á risamóti í 21 skipti. Hann á að baki samtals fjórtán risamótstitla en aðeins einn í Ástralíu, frá 2009. Sjá einnig: Federer áfram eftir frábæran slag Þetta var raunar í fyrsta sinn sem hann keppir í undanúrslitum á risamóti síðan hann vann opna franska árið 2014. Viðureign Nadal og Dimitrov stóð yfir í rétt tæpar fimm klukkustundir og réðist í oddasetti, þar sem Nadal hafði betur, 6-4. Nadal vann fyrsta settið og þeir skiptust svo á að vinna sett eftir það. Sjá einnig: Systurnar mætast í úrslitunum í Ástralíu Nadal mætir nú Roger Federer í úrslitaleiknum á sunnudag og er það í fyrsta sinn sem þeir mætast í úrslitum á risamóti síðan 2011. Þeir hafa marga hildi háð í gegnum tíðina og voru um langan tíma tveir allra bestu tenniskappar heims. Úrslitaviðureignin í kvennaflokki er ekki síður söguleg en þar mætast systurnar Serena og Venus Williams.
Tennis Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira