Hjálpa ungu fólki að verða besta útgáfan af sjálfum sér 7. febrúar 2017 16:15 Þær Anna og Vanda hafa mikla ástríðu fyrir því að leiða ungt fólk áfram í að takast á við hindranir, uppgötva eigin styrkleika og ná markmiðum sínum.
KVAN KYNNIR KVAN býður upp á fjölbreytt og skemmtileg námskeið fyrir unglinga og ungt fólk. Sömuleiðis fyrir kennara, þjálfara og aðra sem vinna með börnum og ungmennum. Markmiðið er að efla ungt fólk og hjálpa því að takast á við aukinn hraða og kröfur í samfélaginu og þær félagslegu áskoranir sem upp koma lífinu. Á námskeiðunum er unnið að því að auka sjálfstraust þátttakenda og trú þeirra á eigin getu. Stefnt er að því að þeir verði meðvitaðri um eigin andlega og líkamlega heilsu og læri aðferðir til að halda jafnvægi í lífinu. Þannig láta þeir síður kvíða og streitu ná tökum á sér, kunna leiðir til að sjá lausnir en ekki vandamál og læra að setja mörk. Meginmarkmiðið er að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Námskeiðin eru fyrir 13-15 ára, 16-19 ára og 20-25 ára, en þau síðastnefndu eru sérstaklega hugsuð fyrir ungt fólk sem vill öðlast skýrari stefnu í lífinu og auka samkeppnisforskot sitt á vinnumarkaði."Ungt fólk þarf hjálp við að þora að vera það sjálft og takast á við áskoranir nútímans," segir Anna.Námskeiðin eru í höndum Vöndu Sigurgeirsdóttur og Önnu Steinsen en báðar hafa lengi starfað með ungu fólki og hafa mikla ástríðu fyrir því að leiða það áfram í að takast á við hindranir, uppgötva eigin styrkleika og ná markmiðum sínum. „Ungt fólk þarf hjálp við að þora að vera það sjálft og takast á við áskoranir nútímans en þannig uppsker það aukna vellíðan,“ segir Anna. Vanda starfar sem lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er einelti og tómstunda- og leiðtogafræði. Anna hefur sérhæft sig í að þjálfa ungt fólk og hefur mikla reynslu af því að halda námskeið og fyrirlestra. Saman eru þær öflugt teymi. Námskeiðin standa flest í átta vikur. „Við trúum á það að ástundun skili árangri eða „learning by doing“ og erum með allskyns skemmtilegar æfingar og hópefli.“ Aðspurð segir Anna námskeiðin vera fyrir allt ungt fólk, enda takast allir á við einhverjar áskoranir. Þær Vanda og Anna bjóða þó líka upp á sértækt námskeið sem nefnist Vináttuþjálfun en Vanda hefur sérhæft sig í henni. „Námskeiðið gagnast öllum börnum og unglingum en er sérlega gagnlegt fyrir þá sem eiga eða hafa átt í félagslegum vanda eins og einangrun og vinaleysi eða hafa orðið fyrir einelti og höfnun,“ segir Anna. Þá er boðið upp á námskeið fyrir fagfólk og kennara sem vinnur með börnum og ungmennum. „Þessu fólki vantar oft verkfæri til að takast á við hluti sem koma upp í starfi. Stærðfræðikennari er til dæmis ekki endilega sérfræðingur í hópefli eða samskiptum en það erum við,“ segir Anna en auk námskeiða býður KVAN upp á styttri fyrirlestra fyrir jafnt ungmenni sem fullorðna og fagfólk. Á morgun, miðvikudag, verður haldin kynning á námskeiðunum að Hábraut 1a í Kópavogi (gengið inn að neðanverðu). Kynningin hefst klukkan 20 og er opin öllum. Anna hvetur alla, sem telja sig geta haft gagn af, að líta við.
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira