Koeman: Rooney er velkominn til Everton Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. febrúar 2017 12:00 Wayne Rooney á heimleið? vísir/getty
Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Everton, er meira en til í að fá Wayne Rooney, fyrirliða Manchester United, til liðs við sig í sumar ef það er í boði. Frá þessu greinir hann í viðtali við Sky Sports. Rooney ólst upp hjá Everton og spilaði sinn fyrsta leik fyrir bláliða Liverpool-borgar árið 2002. Hann skoraði sitt fyrsta deildarmark á móti Arsenal aðeins 16 ára gamall með frábæru skoti í slána og inn sem gleymist seint. Eftir frábæra frammistöðu á Evrópumótinu í Portúgal árið 2004 með enska landsliðinu var hann keyptur til Manchester United þar sem hann hefur spilað síðan. Hann hefur verið orðaður frá United að undanförnu og hafnaði risasamningi í Kína á dögunum. Everton er eitt þeirra liða sem Rooney hefur verið orðaður við en Koeman er ekki á því að framherjinn sé búinn eins og sumum sparkspekingum finnst. „Ég tel Rooney enn vera að spila mjög vel og hann gerði rétt með að vera áfram hjá Manchester United í ensku úrvalsdeildinni,“ segir Koeman. „Rooney á tvö til þrjú góð ár eftir. Hvað gerist eftir leiktíðina á eftir að koma í ljós en að mínu mati er hann leikmaður sem myndi gera Everton-liðið betra en það er núna.“ „Þetta snýst allt um hvað leikmaðurinn vill gera og Manchester United. Við komum ekkert við sögu þar. En allir leikmenn sem gera Everton-liðið betra eru velkomnir til Everton,“ segir Ronald Koeman.
Enski boltinn Mest lesið Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Sport Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Sport Samningar sem tryggja 1,8 milljarð króna í íþróttastarf Sport Sturla biðst afsökunar: „Ekki alveg ég sjálfur þessa dagana og hugsa ekki skýrt“ Sport Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Faðir Vonn tjáir sig og vill ekki sjá dóttur sína keppa aftur Sport „Ég skil ekki hvernig fólk getur skrifað svona“ Sport Silfurhafi um viðbrögð Trumps: „Ekki gaman að vera hluti af þessu“ Sport Snoop Dogg sagður fá 61 milljón króna í laun á dag Sport Atvinnulaus Jóhann kallaður í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Sjá meira