Telegraph spáir miklum tímamótum hjá Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2017 22:00
Blaðamenn Telegraph hafa skoðað stöðuna í ensku úrvalsdeildinni og greint framhaldið hjá liðunum í efstu sætunum. Nú hafa þeir birt spá sína um hvaða lið tryggja sér Meistaradeildarsæti. Chelsea er með tíu stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og ekki bara öryggir með sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili heldur einnig svo gott sem búnir að tryggja sér enska meistaratitilinn. Það eru tólf umferðir eftir og 36 stig í pottinum en miðað við spilamennsku og stöðugleika Chelsea þá er ekkert stórslys í spilunum á síðustu tólf vikum tímabilsins. Það er hinsvegar mikil spennan í baráttunni um hin þrjú sætin sem gefa þátttökurétt í Meistaradeildinni 2017-18 og þar má segja að fimm lið séu að berjast um þrjú laus sæti. Tottenham er með 53 stig, einu stigi meira en Manchester City, en lærisveinar Pep Guardiola í City eiga leik inni. Arsenal er síðan í fjórða sætinu með 50 stig, einu stigi meira en Liverpool. Arsenal á leik inni eins og Manchester City. Blaðamenn Telegraph hafa mikla trú á Manchester City sem þeir segja að taki annað sætið. Þeir setja síðan Tottenham í þriðja sætið. Þá er bara eitt laus sæti og þrjú lið sem eiga möguleika á því. Þar spá menn að mikil tímamót eigi sér stað. Þau eru ekki að Liverpool missti af Meistaradeildarsæti eða að Manchester United taki fjórða sætið og komst í Meistaradeildina annað árið í röð. Nei, tímamótin sem um ræðir er að spekingar Telegraph spá því að Arsenal nái bara fimmta sætinu í deildinni og missi því af Meistaradeildarsæti. Undir stjórn Arsene Wenger hefur Arsenal komist í Meistaradeildina á nítján tímabilum í röð eða allt frá því að liðið komst þangað tímabilið 1998-99 eftir fyrsta meistaratitil liðsins undir stjórn Wenger. Dagskráin er erfið hjá Arsenal. Þeir eiga reyndar að öllu eðlilegu bara eftir einn leik í Meistaradeildinni en þeir eru enn með í enska bikarnum og eiga síðan deildarleiki við Liverpool, Tottenham, Manchester United og Manchester City. þeir bjartsýni segja að þetta sé í höndum leikmanna Arsenal en þeir svartsýnu benda á mjög erfiða leikjadagskrá. Það er hægt að sjá spá og umfjöllun Telegraph með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Sport Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Sport Sturla biðst afsökunar: „Ekki alveg ég sjálfur þessa dagana og hugsa ekki skýrt“ Sport Samningar sem tryggja 1,8 milljarð króna í íþróttastarf Sport Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Faðir Vonn tjáir sig og vill ekki sjá dóttur sína keppa aftur Sport Silfurhafi um viðbrögð Trumps: „Ekki gaman að vera hluti af þessu“ Sport „Ég skil ekki hvernig fólk getur skrifað svona“ Sport Snoop Dogg sagður fá 61 milljón króna í laun á dag Sport Atvinnulaus Jóhann kallaður í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Sjá meira