Fjárframlög Bandaríkjanna til Sameinuðu þjóðanna skorin niður um allt að helming Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. mars 2017 23:15
Starfsmenn utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna hafa fengið fyrirmæli frá Donald Trump, Bandaríkjaforseta, um að leita leiða til þess að skera niður fjárframlög bandaríska ríkisins til Sameinuðu þjóðanna um allt að helming að því er fram kemur í Foreign Policy. Trump og ríkisstjórn hans eiga að kynna fjárlagafrumvarp næsta árs á fimmtudaginn. Gert er ráð fyrir því að í frumvarpinu verði lagt til allt að 37 prósenta niðurskurður til utanríkismála en óljóst er hvort að allur niðurskurðurinn vegna verkefna Sameinuðu þjóðanna komi fram strax. Fjárframlög Bandaríkjanna til Sameinuðu þjóðanna nema um 10 milljörðum dala á ári en niðurskurðurinn kæmi harðast niður á friðargæslunni, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF og þróunaraðstoðinni. Richard Gowan, sérfræðingur í málefnum Sameinuðu þjóðanna, segir að jafnmikill niðurskurður og talið er að Trump vilji ráðast í muni skapa „kaos.“ Hann tekur Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna sem dæmi en það kostar 4 milljarða dollara að reka hana á ári hverju. Einn og hálfur milljarður hefur komið frá Bandaríkjunum og „slíkt gat er einfaldlega of stórt fyrir aðra til að fylla upp í,“ segir Gowan. „Margfaldaðu þetta með öðrum hjálparstofnunum Sameinuðu þjóðanna og við munum horfa upp á algjört hrun í alþjóðlegri mannúðarstarfsemi eins og við þekkjum hana í dag.“ Niðurskurðurinn styrkir þá stefnu Trump að draga úr fjárframlögum til utanríkismála og veita meiri pening í Bandaríkjaher en undir lok síðasta mánaðar greindu yfirvöld frá því að niðurskurður til mannúðarmála erlendis myndi verða til þess að hægt yrði að eyða 54 milljörðum dala til viðbótar í herinn.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira