Erlent

Machado snýr heim eftir nær árs út­legð

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Machado á samkomu Venesúelamanna í Panama fyrr á árinu.
Machado á samkomu Venesúelamanna í Panama fyrr á árinu. Getty

María Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er komin aftur til landsins eftir nærri árs fjarveru.

„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag.

Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í forsetakosningunum 2024, staðfesti heimkomuna skömmu síðar.

Reuters greinir frá því að teymi Machado hafi birt myndir af henni við kirkju í Lara-ríki. Ráðgjafi hennar segir að hún hyggist á næstu dögum hitta meðal annars fórnarlömb jarðskjálfta, fjölskyldur pólitískra fanga, erlenda erindreka og leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Hún ætli jafnframt að þrýsta á um að dagsetning frjálsra og sanngjarnra forsetakosninga verði ákveðin.

Machado yfirgaf Venesúela leynilega undir lok síðasta árs til að taka við friðarverðlaunum Nóbels í Noregi. Óljóst er nákvæmlega hvaða hlutverki Machado hyggst gegna nú þegar hún er komin aftur. Hún hefur áður sagt að hún myndi bjóða sig fram til forseta á ný ef kosningar yrðu haldnar.

Stjórnarandstaðan hefur þrýst mjög á um nýjar kosningar og Machado hefur sagt að þær eigi að fara fram í síðasta lagi í júlí á næsta ári. Engin dagsetning hefur hins vegar verið ákveðin.

Ýmislegt er breytt í Venesúela frá því að Machado fór úr landi. Bandarískar hersveitir handtóku Nicolás Maduro forseta í janúar og fluttu hann til Bandaríkjanna þar sem hann hefur verið ákærður fyrir ýmis brot.

Delcy Rodríguez, sem áður var varaforseti Maduro, tók í kjölfarið við sem starfandi forseti með stuðningi Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Rodríguez hefur lofað kosningum en engin dagsetning hefur verið ákveðin. Upphaflegt 90 daga bráðabirgðatímabil stjórnar hennar er jafnframt liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×