Öruggt hjá Liverpool gegn grófum Everton-mönnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. apríl 2017 13:15 Mané fagnar eftir að hafa komið Liverpool yfir. Vísir/Getty
Liverpool vann 3-1 sigur á Everton í Bítlaborgarslagnum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Með sigrinum komst Liverpool upp í 3. sæti deildarinnar. Everton er áfram í 7. sætinu. Sadio Mané kom Liverpool yfir strax á 8. mínútu þegar hann skoraði sitt fjórtánda deildarmark á tímabilinu. Á 28. mínútu jafnaði Matthew Pennington metin í sínum fyrsta leik í byrjunarliði Everton. Aðeins þremur mínútum síðar var Liverpool aftur komið yfir. Philippe Coutinho skoraði þá með glæsilegu skoti eftir góðan einleik. Staðan var 2-1 í hálfleik, Liverpool í vil. Mané fór meiddur af velli á 57. mínútu. Í hans stað kom Divock Origi og hann var ekki lengi að láta að sér kveða. Um 200 sekúndum eftir að hafa komið inn á skoraði hann þriðja mark Liverpool. Everton-menn ógnuðu þessu forskoti aldrei að neinu ráði. Lykilmenn eins og Romelu Lukaku og Ross Barkley fundu sig engan veginn en sá síðarnefndi var stálheppinn að hanga inni á vellinum. Sömu sögu var að segja af Ashley Williams en leikmenn Everton áttu nokkrar háskalegar tæklingar í leiknum. Lokatölur 3-1, Liverpool í vil en Rauði herinn hefur ekki tapað fyrir Everton á heimavelli á þessari öld.
Enski boltinn Mest lesið Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Enski boltinn Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport Bannað að hafa hjálm sem sýnir látin fórnarlömb Rússa Sport Medalíur að skemmast á Vetrarólympíuleikunum Sport Fjórum hent úr húsi eftir hópslagsmál Körfubolti „Ég svaf ekki mikið í nótt“ Sport Fer frá föður sínum í faðm Guðjóns Vals: „Þetta er risastórt“ Handbolti Forsetinn telur íþróttafólkið best til þess fallið að meta eigin stöðu Sport Fleiri fréttir Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Sjá meira