„Ég svaf ekki mikið í nótt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 10. febrúar 2026 10:31 Sonja Lí Kristinsdóttir hefur brosað hringinn frá því að hún fékk óvænt sæti á ÓL í fyrrakvöld. Mynd/Skíðasamband Íslands Skíðakonan Sonja Lí Kristinsdóttir segist ekki hafa sofið mikið í nótt eftir að hafa fengið þau óvæntu tíðindi í gærkvöld að hún sé á leið á Vetrarólympíuleikana. Hún heldur utan með föður sínum sem er fyrrverandi Ólympíufari.
Hin 19 ára gamla Sonja Lí er ríkjandi Íslandsmeistari í svigi en var ekki á meðal þeirra fjögurra sem héldu út á leikana á dögunum. Íslandi bauðst auka sæti í gærkvöld en Sonja segist hafa verið búin að gefa möguleikann á leikunum upp á bátinn. „Ég var á varalista og var í rauninni andlega klár fyrir þetta alveg lengi. En á síðustu dögum hef ég hugsað að þetta sé búið og nú er að fara á leikana eftir fjögur ár,“ „Svo í gærkvöld fékk ég símhringingu þegar ég var löggst á koddann og mér voru tillkynnt þessar fréttir. Ég get sagt það að ég svaf ekki mikið í nótt. Það er alveg hægt að segja það,“ segir Sonja og hlær. En hvernig voru viðbrögðin þegar kallið kom? „Það fyrsta sem kemur upp er að standa sig. Þetta er stórt augnablik en þetta snýst líka um þessa upplifun og það sem maður fær út úr þessu. Þó það mikilvægasta sé að hafa gaman finnst mér mikilvægt að standa sig. Það er smá pressa en þá er að lækka axlirnar og gera þetta að raunveruleika,“ segur Sonja. Pabbi fær óvæntan félagsskap Sonja fetar í fótspor föður síns, Kristins Magnússonar, sem keppti á leikunum í Salt Lake árið 2002. Kristinn heldur út á morgun til að þjálfa Elínu Elmarsdóttur van Pelt sem keppir fyrir Íslands hönd. Hann fær aukinn félagsskap er Sonja heldur út í fyrramálið. „Hann var alltaf á leiðinni út og var skráður þjálfari fyrir Elínu. Hann vissi ekki að ég væri að ég væri að fara þegar ég fékk símhringinguna. Ég fékk heiðurinn að hringja í pabba og spyrja hvort hann ætti pláss í bílnum á leið í Ólympíuþorpið. Það voru gleðifréttir,“ segir sælbrosandi Sonja sem keppir á leikunum á sunnudaginn kemur og miðvikudaginn eftir það. Viðtal við Sonju úr Sportpakka gærkvöldsins á Sýn má sjá að ofan.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sjá meira