Andy Cole fékk nýtt nýra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2017 10:30 Andrew Cole. Vísir/Getty
Andrew Cole, fyrrum framherji Manchester United og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni, fór í nýrnaígræðslu á dögunum og er því kominn með nýtt nýra. Andrew Cole lék á sínum tíma meðal annars með Arsenal, Newcastle United, Blackburn Rovers, Fulham, Manchester City, Portsmouth og Sunderland en hann er þriðji markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi með 187 mörk. Cole gekkst undir aðgerðina á Manchester Royal Infirmary sjúkrahúsinu. Cole glímir við gauklasjúkdóm (Focal segmental glomerulosclerosis) sem orsakar nýrnabilun hjá fullorðnum. Hann er 45 ára gamall. Þekktastur er Andrew Cole þó fyrir tíma sinn sem leikmaður Manchester United. Cole er starfandi sendiherra Manchester United en hann mun vera í fríi fá því starfi á meðan hann jafnar sig eftir aðgerðina. „Andrew og fjölskylda hans vill þakka klúbbnum og stuðningsmönnum fyrir stuðninginn. Þau biðla líka til allra að hann fái frið til að halda endurhæfingu sinni áfram,“ segir í yfirlýsingu á heimasíðu Manchester United. Andrew Cole vann fimm Englandsmeistaratitla með Manchester United (1996, 1997, 1999, 2000, 2001) á þeim sex árum sem hann spilaði á Old Trafford frá 1995 til 2001. Cole var í lykilhlutverki á 1998-98 tímabilinu þegar United vann þrennuna en hann skoraði þá 24 mörk í 50 leikjum í öllum keppnum. Andrew Cole skoraði alls 93 mörk í 195 deildarleikjum með Manchester United. Andrew Cole var markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar 1993-94 þegar hann skoraði 34 deildarmörk fyrir Newcastle en þetta tímabil var hann einnig kosinn besti ungi leikmaður deildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport Bannað að hafa hjálm sem sýnir látin fórnarlömb Rússa Sport Medalíur að skemmast á Vetrarólympíuleikunum Sport Fjórum hent úr húsi eftir hópslagsmál Körfubolti Forsetinn telur íþróttafólkið best til þess fallið að meta eigin stöðu Sport Fer frá föður sínum í faðm Guðjóns Vals: „Þetta er risastórt“ Handbolti „Ég svaf ekki mikið í nótt“ Sport Sjáðu liðin sem Strákarnir okkar geta ekki mætt í riðlakeppni HM Handbolti Fleiri fréttir West Ham - Man. Utd. | Vinnst fimmti sigurinn í röð? Chelsea - Leeds | Rúllar Rosenior-lestin áfram? Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Sjá meira