Liverpool tilbúið að borga 35 milljónir punda fyir Uxann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2017 10:30 Alex Oxlade-Chamberlain í leik með Arsenal á móti Liverpool. Vísir/Getty
Liverpool hefur mikinn áhuga á enska landsliðsmanninum Alex Oxlade-Chamberlain og Telegraph slær því upp í morgun að hár verðmiði Arsenal breyti engu um það. Alex Oxlade-Chamberlain á aðeins tólf mánuði eftir af samningi sínum hjá Arsenal og engar formlegar viðræður um framlengingu eru komnar af stað. Samkvæmt fyrrnefndum heimildum Telegraph þá ætlar Liverpool að nýta sér þetta. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er það mikill aðdáandi hins 23 ára gamla Oxlade-Chamberlain að hann er tilbúinn að borga fyrir hann 35 milljónir punda eða 4,9 milljarða íslenskra króna. Oxlade-Chamberlain hefur oftar komið inn á sem varamaður (13) en hann hefur verið í byrjunarliðinu (12) í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Hann var ekki í liðinu í 3-0 tapinu á móti Crystal Palace en spilaði síðustu tuttugu mínúturnar. Alex Oxlade-Chamberlain er með 6 mörk og 8 stoðsendingar í 39 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu. Í 21 leik hefur hann verið í byrjunarliðinu. Margir Arsenal-menn eru ekki búnir að gleyma því þegar Arsenal seldi Robin van Persie til Manchester United fyrir 24 milljónir punda í ágúst 2012 þegar hollenski framherjinn var á síðasta ári samnings síns. Van Persie skoraði 27 mörk fyrir United á tímabilinu og hjálpaði liðinu að vinna enska meistaratitilinn. Oxlade-Chamberlain er ekki eini leikmaður Arsenal þar sem framtíðin er óviss. Alexis Sanchez hefur verið orðaður við PSG, Manchester City og Chelea og þá er búist við því að Mesut Özil verði líka seldur. Ofan á þetta bætist það við að knattspyrnustjórinn Arsene Wenger hefur ekki formlega tilkynnt um framtíð sína í starfi þó flestir búist við því að hann haldi áfram.
Enski boltinn Mest lesið Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport Bannað að hafa hjálm sem sýnir látin fórnarlömb Rússa Sport Medalíur að skemmast á Vetrarólympíuleikunum Sport Fjórum hent úr húsi eftir hópslagsmál Körfubolti Forsetinn telur íþróttafólkið best til þess fallið að meta eigin stöðu Sport Sjáðu liðin sem Strákarnir okkar geta ekki mætt í riðlakeppni HM Handbolti Fer frá föður sínum í faðm Guðjóns Vals: „Þetta er risastórt“ Handbolti „Ég svaf ekki mikið í nótt“ Sport Fleiri fréttir Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Sjá meira