Stefáni sparkað frá Selfossi | Vilja stærra nafn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. apríl 2017 00:14 Stefán kom Selfossi í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í 21 ár. vísir/anton
Stefán Árnason hefur verið látinn taka pokann sinn hjá karlaliði Selfoss í handbolta en félagið hefur í hyggju að ráða „stærra nafn“ til að þjálfa liðið. Mbl.is greinir frá. „Ég var kallaður á fund þar sem stjórnin tilkynnti mér að það ætti að skoða hvort hægt væri að finna stærra nafn til þess að þjálfa liðið. Ég hélt bara að ætti að ræða næsta vetur og skoða stefnuna og slíkt, en þá var mér tilkynnt þetta,“ sagði Stefán í samtali við mbl.is. Stefán tók við þjálfun Selfoss 2015 og stýrði liðinu upp í Olís-deildina á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn. Selfoss endaði í 5. sæti Olís-deildarinnar í vetur sem er besti árangur liðsins síðan 1994. Selfoss féll svo úr leik fyrir Aftureldingu í 8-liða úrslitum. Þrátt fyrir að stjórn Selfoss hafi tjáð Stefáni að hún ætlaði að leita að stærra nafni er ekki útilokað að það verði rætt aftur við hann. „Mér finnst ég hafa unnið fyrir því að halda áfram með liðið og mér finnst við á hárréttri leið. En þeir verða að stjórna þessu eins og þeir vilja. Það á að skoða hvort það sé stærra nafn í boði, en þeir ætluðu svo í rauninni að heyra aftur í mér,“ sagði Stefán.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira