Lögreglumaður í Texas sviðsetti eigin dauðdaga og flúði til Mexíkó Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. maí 2017 18:30 Coleman Martin, umræddur lögreglumaður. Lögreglan í Austin
Lögregluyfirvöld í Austin í Texax telja nú að lögreglumaður að nafni Coleman Martin hafi sviðsett dauða sinn og sé nú við hestaheilsu í Mexíkó. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem hún birti á föstudag auk handtökuskipunar. Hvarf Martin uppgötvaðist þann 25. apríl síðastliðinn. Þá hringdi eiginkona hans í lögregluna og tjáði þeim að hann hefði yfirgefið hús þeirra undir þeim formerkjum að hann yrði að „hreinsa hugann.“ Þá hafi hann svo loks sent eiginkonu sinni mynd af bréfi þar sem hann tilkynnti henni að hann ætlaði sér að taka eigið líf. Eftir stutta leit fann lögreglan bíl mannsins auk bréfsins sem hann hafði sent konu sinni mynd af, nálægt stöðuvatni við landamæri Mexíkó. Lögreglan leitaði að líki mannsins í vatninu án árangurs. Eftir frekari rannsókn komst lögreglan svo loks að hinu rétta. Maðurinn hafði átt í leynilegu sambandi við aðra konu í fjölda ára en þegar lögreglan yfirheyrði umrædda konu kom í ljós að Martin hafði sent henni tölvupóst þann 26. apríl síðastliðinn og því eftir meint sjálfsvíg. Hann hafi því sviðsett sjálfsvíg sitt til að freista þess að hefja nýtt líf með leynilegri ástkonu sinni. Eins og áður segir leitar lögregla nú mannsins.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira