Keiluhöllin græddi 58 milljónir króna Haraldur Guðmundsson skrifar 3. maí 2017 11:30 Gleðipinnar keypti Keiluhöllina í febrúar 2015. Vísir/GVA
Keiluhöllin í Egilshöll var rekin með 58 milljóna króna hagnaði í fyrra. Afkoman var jákvæð um 1,2 milljónir árið 2015 og því um 57 milljóna viðsnúning að ræða milli ára. Þetta kemur fram í nýjum ársreikningi Gleðipinna ehf. sem er rekstrarfélag Keiluhallarinnar. Samkvæmt honum námu rekstrartekjur félagsins 614 milljónum í fyrra samanborið við 274 milljónir árið áður. Leiga á keilubrautum nam 213 milljónum, jókst um 76 milljónir milli ára, en veitingasalan velti 400 milljónum. Í þeim hluta nam aukningin á milli ára 267 milljónum en eigendur Gleðipinna opnuðu veitingastaðinn Shake & Pizza haustið 2015 í Egilshöll og reka þar einnig sportbar. Rekstrargjöld jukust aftur á móti úr 260 milljónum árið 2015 í 525 milljónir.Simmi og Jói eru hluthafar ?í Keiluhöllinni.Eignir félagsins í árslok 2016 námu 133 milljónum og bókfært eigið fé var jákvætt um 22 milljónir. Félögin Immis ehf., í eigu Sigmars Vilhjálmssonar, og Hinir ehf., í eigu Jóhannesar Ásbjörnssonar, eru stærstu eigendur Gleðipinna með hvor sín 26,7 prósentin. Múlakaffi á 15,8 prósent sem og félagið Granat ehf. sem er í eigu Guðmundar Auðuns Auðunssonar. Árið 2016 var annað starfsár Gleðipinna en félagið var stofnað í febrúar 2015. Þeir Sigmar og Jóhannes, eða Simmi og Jói, oftast kenndir við Hamborgarafabrikkuna, keyptu þá rekstur Keiluhallarinnar ásamt Jóhannesi Stefánssyni, oftast kenndum við Múlakaffi. Simmi er framkvæmdastjóri félagsins en Jói einn þriggja stjórnarmanna.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Loka verslun Útilífs í Smáralind Viðskipti innlent Birgir til Banana Viðskipti innlent Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Viðskipti innlent Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Neytendur Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Viðskipti innlent Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Sjá meira