Fara fram á vægð varðandi þvinganir Samúel Karl Ólason skrifar 12. maí 2017 23:42 Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu. Vísir/AFP
Yfirvöld Norður-Kóreu biðluðu í dag til ríkja heimsins að sýna þeim vægð og fylgja ekki viðskiptaþvingunum Sameinuðu þjóðanna gegn ríkinu. Fyrstu þvingununum var beitt gegn Norður-Kóreu árið 2006 og hafa þær margsinnis verið hertar síðan vegna eldflauga- og kjarnorkuvopnatilrauna einræðisríkisins. Bréfið sem birt var í dag, en dagsett í gær, er til 192 aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og tveggja ríkja til viðbótar, samkvæmt frétt Reuters fréttaveitunnar. Þar fer Norður-Kórea fram á að framfylgd þvingana verði endurskoðuð á meðan lögmæti þeirra verði rannsakað. Norður-Kórea hefur lengi farið fram á að alþjóðlegt ráð sérfræðinga segi til um hvort að þvinganirnar séu löglegar samkvæmt alþjóðalögum. Í fréttatilkynningu sem fylgdi bréfinu saka Norður-Kóreumenn Bandaríkin um að hóta öðrum ríkjum, fylgi þau ekki þeim þvingunum sem beitt hefur verið gegn einræðisríkinu. Þar að auki sendi Norður-Kórea, samkvæmt ríkismiðlinum KCNA, einnig bréf til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings þar sem varað var við því að hertar þvinganir myndu einungis hraða kjarnorkuvopnatilraunum ríkisins. Bandaríkin eiga nú í viðræðum við Kína, eina bandamann Norður-Kóreu, um hertari viðskiptaþvinganir.
Norður-Kórea Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira