Fluttu út ál fyrir 181 milljarð í fyrra Hörður Ægisson skrifar 11. maí 2017 08:30 Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls.
Útflutningsverðmæti álvera á Íslandi námu 181 milljarði árið 2016 eða 33,9% af heildarvöruútflutningi. Þar af námu innlend útgjöld álveranna tæpum 80 milljörðum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur á ársfundi Samáls, sem haldinn verður í Hörpu í dag, fimmtudaginn 11. maí. „Útflutningsverðmætin lækka töluvert frá árinu 2015 og munar þar mestu um styrkingu krónunnar og lægra álverð,“ segir Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls. Árið 2015 námu útflutningsverðmætin um 237 milljörðum. „Álverin keyptu vörur og þjónustu af hundruðum fyrirtækja fyrir 22,5 milljarða og er þá raforka undanskilin. Það er til marks um gróskuna í álklasanum, en í þeim hópi eru fyrirtæki á borð við verkfræðistofur, vélsmiðjur, málmsteypur og skipafélög. Þar á meðal eru fyrirtæki sem flytja út vörur og þjónustu til álvera um allan heim.“ Raforkukaupin námu rúmum 36 milljörðum, en þá er horft til raforkunotkunar þeirra og uppgefins meðalverðs Landsvirkjunar til stóriðju, að sögn Péturs. „Alls nam álframleiðsla í fyrra 856 þúsund tonnum, eða um 1,4% af heimsframleiðslu áls.“
Mest lesið Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Viðskipti innlent „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Loka verslun Útilífs í Smáralind Viðskipti innlent Birgir til Banana Viðskipti innlent Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Viðskipti innlent Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Sjá meira