Bjóst við að verða jarðaður á Cannes en var valinn besti leikarinn Birgir Olgeirsson skrifar 29. maí 2017 10:55 Mér fannst í raun frábært að fá að vita hvernig það er að vera óvinsæll. Það var það sem ég átti von á áður en ég kom hingað,“ sagði Joaquin Phoenix eftir að hann var valinn besti leikarinn á Cannes. Vísir/EPA
Bandaríski leikarinn Joaquin Phoenix átti alls ekki von á því að verða valinn besti leikarinn á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi og virtist ekki alveg skilja að honum hefði hlotnast sá heiður á verðlaunaathöfninni í gær. Phoenix talar ekki frönsku og vissi því ekki hvað var í gangi þegar niðurstaða dómnefndarinnar var kynnt. Hann heyrði þó nafn sitt inni á milli frönskunnar og í sömu andrá var myndavélinni beint að honum og hann klappaður upp á svið. Hann var þó ekki enn viss og spurði kærustu sína, Rooney Mara, hvort hann þyrfti að fara upp á svið?Phoenix fékk verðlaunin fyrir leik sinn í kvikmyndinni You Were Never Really Here. Þar leikur hann fyrrverandi hermann sem tekur að sér ýmis verkefni sem aðrir fást ekki til að gera. Í myndinni er hann ráðinn í það verkefni að bjarga ungum stúlkum úr kynlífsánauð, og leggur í það verk með hamar einan að vopni. „Ég bjóst alls ekki við þessu, eins og þið sjáið á skónum mínum,“ sagði Phoenix sem skartaði Converse-strigaskóm við smóking. „Ég geng ekki í leðri og skórnir mínir voru sendir heim með flugvélinni.“ Á blaðamannafundi eftir verðlaunaathöfnina sagði Phoenix að hann hann hefði ekki búist við að einhverjum myndi líka við myndina. „Áður en ég kom hingað sagði ég við kærustuna mína að þetta yrði góð upplifun því ég er yrði jarðaður og það er afar auðmýkjandi. Mér fannst í raun frábært að fá að vita hvernig það er að vera óvinsæll. Það var það sem ég átti von á áður en ég kom hingað.“ Hann var spurður af hverju hann fór ekki beint upp á svið þegar niðurstaðan var ljós. Hann sagðist hreint ekki hafa verið viss um hvað var að gerast og vildi ekki hætta á að fara upp á svið og vera síðan rekinn niður aftur.
Cannes Tengdar fréttir Sænska kvikmyndin The Square vann Gullpálmann Gullpálminn fór til Svíþjóðar. 28. maí 2017 19:09 Diane Kruger vann gullpálmann í Cannes Leikkonan var stórglæsileg á rauða dreglinum. 28. maí 2017 22:15 Adam Sandler stal senunni á Cannes með því að minna á að hann getur leikið Sagður eiga stórleik í kvikmyndin The Meyerowitz Stories sem er ein af Netflix-myndunum sem hafa valdið miklum deilum á þessari virtu hátíð. 21. maí 2017 19:45 Þetta eru kvikmyndirnar sem keppa um Gullpálmann í Cannes Kvikmyndahátíðin í Cannes stendur nú sem hæst og verður hinn eftirsótti Gullpálmi afhentur við hátíðlega athöfn á sunnudaginn. Alls keppa 19 kvikmyndir um pálmann og er kvikmyndin Happy End talin líklegust til að vinna ef marka má veðbankana. 26. maí 2017 15:30 Mest lesið Best að geta elt draumana saman Lífið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Fleiri fréttir Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira
Diane Kruger vann gullpálmann í Cannes Leikkonan var stórglæsileg á rauða dreglinum. 28. maí 2017 22:15
Adam Sandler stal senunni á Cannes með því að minna á að hann getur leikið Sagður eiga stórleik í kvikmyndin The Meyerowitz Stories sem er ein af Netflix-myndunum sem hafa valdið miklum deilum á þessari virtu hátíð. 21. maí 2017 19:45
Þetta eru kvikmyndirnar sem keppa um Gullpálmann í Cannes Kvikmyndahátíðin í Cannes stendur nú sem hæst og verður hinn eftirsótti Gullpálmi afhentur við hátíðlega athöfn á sunnudaginn. Alls keppa 19 kvikmyndir um pálmann og er kvikmyndin Happy End talin líklegust til að vinna ef marka má veðbankana. 26. maí 2017 15:30