Háttsettur bandarískur þingmaður skotinn á hafnaboltaæfingu Atli Ísleifsson og Kristín Ólafsdóttir skrifa 14. júní 2017 12:08 Þingmaður fulltrúadeildar bandaríska þingsins, Steve Scalise, var skotinn á hafnaboltaæfingu í Virginíu-fylki í Bandaríkjunum í dag. Vísir/Afp Repúblikaninn Steve Scalise, þingmaður fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, var skotinn á hafnaboltaæfingu í Alexandríu í Virginíu-ríki í Bandaríkjunum í dag. Hann var við æfingar ásamt fleiri þingmönnum Repúblikanaflokksins. Fox News greinir frá.Lögregla rannsakar nú árásina, sem hófst um klukkan 7:15 í morgun að staðartíma, en Scalise var við æfingar ásamt flokksbræðrum sínum fyrir árlegan hafnaboltaleik gegn Demókrötum. CNN greinir frá því að milli fimmtíu og hundrað skotum hafi verið hleypt af. Hinn 51 árs Scalise er sagður hafa verið skotinn í mjöðmina og þá er einn starfsmaður fulltrúadeildar þingsins talinn hafa verið skotinn í bringuna. Árásarmaðurinn er talinn hafa verið hvítur karlmaður. Alls hafa fimm verið fluttir á sjúkrahús: Scalise, tveir lögregluþjónar, starfsmaður fulltrúadeildar þingsins og árásarmaðurinn sem var skotinn niður af lögreglu. Við komu á spítalann ræddi Scalise við eiginkonu sína í síma. Scalise er þingmaður fyrir Louisiana-ríki og hefur gegnt stöðu „svipu“ (e. whip) í þinginu. Hlutverk þeirra er að halda greiða úr samskiptum á milli þingmanna og leiðtoga þeirra. Þá sjá þeir til þess að halda uppi flokksaga þegar að kjósa á um frumvörp. Hann tók sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings árið 2008.Uppfært 15:47: Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því fyrir stundu að árásarmaðurinn hafi látið lífið af völdum sára sinna.
Repúblikaninn Steve Scalise, þingmaður fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, var skotinn á hafnaboltaæfingu í Alexandríu í Virginíu-ríki í Bandaríkjunum í dag. Hann var við æfingar ásamt fleiri þingmönnum Repúblikanaflokksins. Fox News greinir frá.Lögregla rannsakar nú árásina, sem hófst um klukkan 7:15 í morgun að staðartíma, en Scalise var við æfingar ásamt flokksbræðrum sínum fyrir árlegan hafnaboltaleik gegn Demókrötum. CNN greinir frá því að milli fimmtíu og hundrað skotum hafi verið hleypt af. Hinn 51 árs Scalise er sagður hafa verið skotinn í mjöðmina og þá er einn starfsmaður fulltrúadeildar þingsins talinn hafa verið skotinn í bringuna. Árásarmaðurinn er talinn hafa verið hvítur karlmaður. Alls hafa fimm verið fluttir á sjúkrahús: Scalise, tveir lögregluþjónar, starfsmaður fulltrúadeildar þingsins og árásarmaðurinn sem var skotinn niður af lögreglu. Við komu á spítalann ræddi Scalise við eiginkonu sína í síma. Scalise er þingmaður fyrir Louisiana-ríki og hefur gegnt stöðu „svipu“ (e. whip) í þinginu. Hlutverk þeirra er að halda greiða úr samskiptum á milli þingmanna og leiðtoga þeirra. Þá sjá þeir til þess að halda uppi flokksaga þegar að kjósa á um frumvörp. Hann tók sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings árið 2008.Uppfært 15:47: Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því fyrir stundu að árásarmaðurinn hafi látið lífið af völdum sára sinna.
Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira