Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Samúel Karl Ólason skrifar 25. september 2026 11:47 Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael. EPA/ABIR SULTAN Sérstök þingnefnd um kosningar meinaði í vikunni stjórnmálaflokkum landsins sem leiddir eru af Aröbum að bjóða fram í þingkosningum næsta mánaðar. Fastlega er búist við því að hæstiréttur Ísrael muni ógilda ákvörðun nefndarinnar, sem er nánast eingöngu skipuð þingmönnum.
Meirihluti nefndarinnar greiddi atkvæði með því að banna tvo lista fyrir kosningarnar og að meina einstökum arabískum stjórnmálamönnum að bjóða sig fram. Þetta felur í raun í sér, verði þetta raunin, að arabískir Ísraelar munu ekki eiga kost á að velja sér arabíska þingmenn, samkvæmt frétt Times of Israel. Um tuttugu prósent ísraelskra borgara eru Arabar. Hæstiréttur landsins þarf að staðfesta bönn gegn einstökum stjórnmálamönnum og stjórnmálaflokkar geta áfrýjað ákvörðun nefndarinnar, sem verður gert í næstu viku, samkvæmt frétt Al Jazeera. Málefni einstöku stjórnmálamannanna verða tekin fyrir í dag. Ákvörðun nefndarinnar kom í kjölfar þess að Likud-flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra fór fram á að flokkarnir yrðu bannaðir á þeim grunni að þeir hefðu stutt hryðjuverkastarfsemi gegn ísraelska ríkinu. Lög um ísraelska þingið leyfa bann við fólki og stjórnmálaflokkum sem hafna tilvistarrétti Ísrael eða hvetja til ofbeldis gegn ríkinu. Þessu hafna arabískir stjórnmálaleiðtogar alfarið að hafa gert. Í grein Times of Israel segir að líklegt sé að ákvarðanir nefndarinnar verði úrskurðaðar ógildar af hæstarétti. Þröskuldurinn fyrir því að banna stjórnamálaflokka hafi í gegnum tíðina verið mjög hár. Leiðtogar umræddra flokka hafa sakað ríkisstjórn Ísrael um að reyna að draga úr vilja Araba til að greiða atkvæði í kosningunum í næsta mánuði. Þeir Netanjahú og Itamar Ben-Gvir, mjög svo umdeildur öryggismálaráðherra, eru sagðir óttast getu Araba í Ísrael til að fella ríkisstjórn þeirra.
Ísrael Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Sjá meira