Stöðva þurfti sýningu á Mamma Mia eftir alvarlega bilun í flugkerfi Kristín Ólafsdóttir skrifar 10. júní 2017 08:48 Mikil mildi þykir að ekki fór verr þegar slanga sprakk í flugkerfi á sýningunni Mamma Mia í gærkvöldi. mynd/borgarleikhúsið
Alvarleg bilun varð í flugkerfi á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu í gærkvöld er sýning stóð yfir á söngleiknum Mamma Mia. Stöðva þurfti sýningu vegna bilunarinnar en engin slys urðu á fólki. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Borgarleikhúsinu. Í tilkynningunni segir einnig að í hléi á sýningunni hafi slanga sprungið í flugkerfinu yfir sviðinu. 300 lítrar af glussa, eða frostlegi, sprautuðust yfir stóran hluta sviðsins. Engin slys urðu á fólki en nær enginn var á sviðinu þegar bilunin varð og mikil mildi þykir að ekki fór verr. Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins, ávarpaði gesti og tilkynnti þeim að ekki væri hægt að halda sýningunni áfram vegna þessarar bilunar. Þá mun leikhúsið reyna eftir fremsta megni að bæta gestum skaðann. „Borgarleikhúsið vill koma þeim skilaboðum á framfæri að reynt verði eftir fremsta megni að bæta leikhúsgestum skaðann og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta óhapp kann að hafa valdið. Jafnframt vilja forsvarsmenn hússins koma þeim skilaboðum á framfæri að upplýst verði um næstu skref um leið og nánari upplýsingar liggja fyrir sem verður að öllum líkindum seinnipartinn í dag, laugardag.“ Teymi frá Reykjavíkurborg, sem sérhæfir sig í þrifum eftir slys sem þetta, vinnur nú hörðum höndum að því að þrífa sviðið og eftir að þeirri vinnu lýkur verður hægt að meta tjónið og ákveða næstu skref. Nánari upplýsingar munu liggja fyrir eftir að hreinsun lýkur.Hér má sjá tilkynningu Borgarleikhússins í heild sinni:
Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira