Tæknirisar taka höndum saman í baráttu gegn hryðjuverkum Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. júní 2017 23:39 Fyrirtækin hafa lengi verið gagnrýnd fyrir að veita hryðjuverkamönnum vettvang til að koma áróðri sínum á framfæri. Vísir/afp
Tæknirisarnir Facebook, YouTube, Twitter og Microsoft tilkynntu í dag um stofnun alþjóðlegs netumræðusvæðis gegn hryðjuverkum. Með stofnun umræðusvæðisins svara fyrirtækin gagnrýni þess efnis að þeim hafi mistekist að koma í veg fyrir hryðjuverkaáróður á síðum sínum. The Guardian greinir frá.Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að með samstarfinu, sem ól af sér alþjóðlega umræðusvæðið (e. Global Internet Forum to Counter Terrorism), muni þau einblína á tæknilegar lausnir og rannsóknir. Þá verður baráttunni einnig gefinn farvegur í samstarfi við ríkisstjórnir og aðra borgaralega hópa. Markmiðið er að gera síðurnar fjandsamlegt umhverfi fyrir hryðjuverkamenn. Fyrirtækin, og þá sérstaklega Facebook, hafa lengi verið gagnrýnd fyrir að veita hryðjuverkamönnum vettvang til að koma áróðri sínum á framfæri. Vitað er til þess að hryðjuverkamenn afli sér liðsmanna með hjálp tækninnar sem fyrirtækin bjóða upp á og noti auk þess vettvanginn til deilingar á ofbeldisfullum skilaboðum, þar á meðal til streymis á aftökum í beinni útsendingu.Leita ýmissa leiða í baráttunni Með nýja umræðusvæðinu ætla fyrirtækin að leita leiða til „greiningar á efni“ sem gæti talist tengt hryðjuverkum og „flokkunaraðferðum“ á því efni. Þá verður unnið með nefndum á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem sérhæfa sig í aðgerðum gegn hryðjuverkum, til þess að „staðfesta hvernig best sé að berjast gegn öfgastefnu og hatri á internetinu, um leið og tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífsins er virt.“ Komið hefur fram að Facebook hefur bæði fólk í vinnu, sem þarf að þekkja andlit og nöfn yfir 600 hryðjuverkamanna, til að sporna við ágangi þeirra og beitir einnig hugbúnaði sem framkvæmir fyrirbyggjandi skoðun á efni sem sett er inn á síðuna. Yfirvöld um allan heim hafa lengi beitt tæknifyrirtækin þrýstingi vegna dreifingar á áróðri öfgamanna. Í desember síðastliðnum funduðu embættismenn frá Hvíta húsinu með Apple, Facebook, Twitter og Micosoft til að ræða aðgerðir í málaflokknum. Þau þrjú síðarnefndu, auk YouTube, standa nú að stofnun hins alþjóðlega umræðusvæðis.
Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira